09.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1112 í B-deild Alþingistíðinda. (1323)
42. mál, vitagjald
Framsm. (Ólafur Briem):
Eg tók það fram við framh. 1. umræðu, að nefndin leggi til að gerðar verði tvær efnisbreytingar á frv. Hin fyrri er sú, að aðeins herskip skuli undanþegin vitagjaldi, en vitagjaldsskylda þar á móti lögð á skemtiskip, sem nú eru undanþegin. Samkvæmt upplýsingum, sem nefndin hefir fengið frá umsjónarmanni vitanna, mun það ekki vera alþjóðaregla að undanþiggja skemtiskip frá vitagjaldi, — en sú mun hafa verið ástæðan til undanþágunnar, er lögin voru sett, að menn héldu að svo væri. Í Svíþjóð
t. d. er vitagjald heimtað af skemtiskipum.
— Viðvíkjandi orðinu »skemtiskúta«,sem haft er í gildandi vitagjaldslögum skal þess getið, að það er nokkuð óljóst og greinarmunurinn á því og farþegaskipi, sem haft er til skemtiferða, ekki glöggur; en með »skemtiskútum« mun aðallega átt við lítil skip, sem einstaka auðmenn eiga og nota sér til skemtunar.
Önnur efnisbreytingin er sú, að takmarka nokkuð innheimtulaun af vitagjaldi útlendra fiskiskipa. Nú er svo ákveðið, að þau skuli yfirleitt vera 20% eða ? af gjaldinu, en hér er farið fram á, að framvegis skuli innheimtulaun aðeins greiðast þar sem umboðsmaður lögreglustjóra heimtir vitagjaldið inn, en að þau skuli falla burt, þegar lögreglustjóri sjálfur annast innheimtuna. Ástæðan til þessarar breytingar er sú að nefndin leit svo á, sem hér væri ekki um neina sérstaka fyrirhöfn fyrir lögreglustjóra að ræða, þar sem þeir, hvort sem er, eiga að innheimta um leið önnur gjöld af skipunum. Þó leggur nefndin ekki mikla áherzlu á þetta, því að hér er ekki um mikinn tekjuauka fyrir landssjóð að ræða. Í Reykjavík hafa innheimtulaunin verið um 800 kr., á Ísafirði 400 kr., í Barðarstrandarsýslu 250 kr. og í Gullbringusýslu 100 kr. Annarstaðar eru þau minni. Tekjuaukinn mundi því nema eitthvað 2—3 þús. kr., en eins og eg hefi tekið fram, er nefndinni þetta atriði ekkert kappsmál.