11.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í B-deild Alþingistíðinda. (1328)
42. mál, vitagjald
Framsögum. (Ólafur Briem):
Nefndin hefir komið fram með 1 brtill. á þgskj. 167. Efni brtill. er í því fólgið að láta breytingu þá á innheimtulaunum lögreglustjóra, er samþykt var við 2. umr., ekki ná til núverandi lögreglustjóra. Þessi brtill. dregur því það úr þeirri breytingu, sem gerð var á frumv. við 2. umr., að 2. gr. frv. verður ekki beitt fyr en við embættismannaskifti. Nefndin leit svo á, að það kynni að þykja hart, að svifta menn kaupi fyrir störf sín, sem þeir eiga að halda áfram að gegna. Það mun vera algeng venja, að menn, sem hafa ákveðin laun fyrir ákveðið starf, verða ekki sviftir laununum, nema starfið sé tekið af þeim. Sumir í nefndinni voru nokkuð hikandi, hvort bera ætti fram brtill., en sú varð þó niðurstaðan, að það þótti sanngirniskrafa að bera hana fram og býst eg við að meiri hluti þingd. samþykki hana.
Aðrar brtill. hefir nefndin ekki komið fram með.