23.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1170 í B-deild Alþingistíðinda. (1375)

25. mál, vegamál

Framsögum. (Ólafur Briem):

Nefndin hefir á þgskj. 155 komið fram með yfirgripsmiklar breyt.till við frv. og skal eg leyfa mér að fara nokkrum orðum um þær.

Að því er snertir fyrstu breyt.till. við 1. gr. frumv., áleit nefndin að halda ætti fast við grundvallarreglu vegalaganna, að því er snertir viðhald flutningabrauta og að þess vegna væri ekki ráðlegt að gera neina þá breytingu, er skapað gæti fordæmi. Nefndin leit svo á, að með 1. gr. frumv. væri langt gengið í þá átt, en breytingartillaga nefndarinnar aftur á móti fer miklu skemra, þar sem aðeins viðhald flutningabrautarinnar austur að Ingólfsfjalli er látin hvíla á landssjóði, en í frumv. er farið fram á, að landssjóður skuli kosta hana austur að Rangá. Með þessari tillögu gefur nefndin til kynna, að hún vill ekki að grundvallarreglu vegalaganna sé raskað. Það er að eins álitamál, hvort landssjóður eigi að kosta viðhald brautarinnar austur að Reykjum í Ölfusi, eins og ákveðið er í gildandi vegalögum, eða austur að Grímsnesbrautinni við Ingólfsfjall. Þetta munar 12 kílómetrum og yrði viðhaldskostnaðurinn á þessari vegalengd 900 kr. á ári. Það sem hér er um að ræða er, að landssjóður taki að sér að greiða þessar 900 kr. á ári, að Árnessýsla taki að sér viðhaldskostnaðinn á brautinni milli Ölfusárbrúar og Þjórsárbrúar, en að Rangárvallasýsla verði laus allra mála við þennan kostnað. Þetta er ekki allskostar ósanngjarnt, því að enda þótt Árnessýsla hafi fengið meira fé til vegagerðar en nokkur önnur sýsla á landinu, þá væri þessi kvöð þó næsta þung, ef henni væri ekki létt að nokkru. Eg skal ennfremur geta þess, að nefndin er mótfallin breytingartillögu þeirri, er háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) hefir komið fram með við frumv. þetta. Önnur breyttill. við 1. gr. frumv. frá háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) á þgskj. 233 lýtur að því, að viðhaldsskylda Rangárvallasýslu á flutningabrautinni milli Ölfusárbrúar og Þjórsárbrúar falli ekki niður fyr en 1. jan. 1914. Þetta er mál milli Árnes- og Rangárvallasýslna, og eg býst við að hv. þm. þeirra komi sér saman um það.

Þá hefir nefndin komið fram með breyt.till. við 2. gr. frv., og fer tillagan fram á, að flutningabrautir séu skoðaðar af tilnefndum mönnum, áður en afhending fer fram, og að allir gallar á þeim séu endurbættir samkvæmt tillögum landsverkfræðingsins og úrskurði stjórnarráðsins. Þetta er líkt því sem nú gildir, þar sem verkfræðingurinn skal skera úr, hvort flutningabrautir skuli afhentar sýslunum og dæma um, hvenær þær eru svo úr gerði gerðar, að þær verði afhentar. Breyt.till. nefndarinnar við 2. gr. fer fram á, að hin fyrirskipaða skoðun á flutningabrautum, áður en að þær eru afhentar sýslunefndum, sé svo síðarmeir höfð til hliðsjónar við það, hvernig viðhaldsskyldunni sé fullnægt af héraði því, er hlut á að máli.

Breytingartillögurnar við 3. og 4. gr., tölulið 3—7, á þgskj. 155 lúta að því, að hreppsvegasjóðsreikningurinn sé feldur burt sem sérstakur reikningur, en að hreppsvegagjaldið renni beint í sveitarsjóð, og að úr honum sé einnig greiddur kostnaður við hreppsvegabætur.

Sömuleiðis er í þeim breyttill. farið fram á, að ekki að eins hreppsvegagjaldið, heldur einnig sýsluvegagjald, skuli greitt sem persónugjald af hverjum einstökum verkfærum karlmanni 20—60 ára, en sýsluvegagjaldið ekki eins og nú greitt af aukaútsvörum eftir efnum og ástæðum. Nefndinni þótti ekkert sérlega varhugavert við þetta, heldur taldi það vel gerlegt að leggja ekki að eins hreppsvegagjald, heldur einnig sýsluvegagjald á alla verkfæra menn.

Og enn hefir nefndin gert þá breyt.till., að eindagi á hreppsvegagjaldi skuli vera 31. desember, en ekki á vorhreppsskilum, eins og verið hefir. Gjalddagi á sveitarútsvörum er 31. des. og sparar það því óþarfa fyrirhöfn og léttir innheimtuna, að öll sveitargjöld séu greidd á sama tíma. Hér við bætist einnig, að ýmsir hreppsbúar, bæði bændur og vinnumenn, geta verið fluttir burtu úr hreppnum nokkru fyrir vorhreppsskil, annaðhvort í fardögum eða á vinnuhjúaskildaga og því erfitt að ná í þá, ef þeir eru fluttir langt burtu.

Nefndin hefir ekki gert fleiri efnisbreytingar við frumv.

Eg skal taka það fram, að í 5. gr. frv. er farið fram á að nema úr gildi 55. gr. vegalaganna frá 1907. Og er nefndin því samþykk, að sérréttindi þau, er verzlunarstaðir, sem eru hreppsfélög út af fyrir sig, hafa samkvæmt nefndri lagagrein til þess að vera lausir við nokkurn hluta sýslusjóðsgjaldsins, skuli falla burtu. En með því að eg gerði grein fyrir því nýmæli við 1. umr. þessa máls, skal eg ekki fjölyrða um það nú.