04.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í B-deild Alþingistíðinda. (138)

144. mál, fjáraukalög 1908 og 1909

Kristinn Daníelsson:

Þó eg hafi skrifað undir n.ál. með fyrirvara, þá er eg þó ekki meðnefndarmönnum mínum ósamdóma í neinum verulegum atriðum, en eg sé ekki ástæðu til að gera neinar athugasemdir við þessar 2 fjárveitingar, því mér virðist þær báðar vera sjálfsagðar. Það var nauðsynlegt að leggja vatnsæð heim að Kleppi, og hefði fjárveiting til þess vafalaust verið samþykt á þingi, ef þess hefði verið freistað. En sérstaklega er eg þó hv. meðnefndarmönnum mínum ósamdóma um hina fjárveitinguna, því að eg verð að álíta, að það sé fullkomlega upplýst, að það hafi verið gagnlegt og nauðsynlegt að styrkja Jón Bergsveinsson til þessarar ferðar. Um reikninginn get eg ekki dæmt, því eg hefi ekki séð hann. Það má vel vera, að hann þurfi endurskoðunar við, enda er gott og sjálfsagt að allir reikningar séu endurskoðaðir. En eg gat ekki tekið undir þau orð í nefndarálitinu, að þessi fjárbrúkun væri vítaverð. Þetta átti eg við með fyrirvara mínum; annar ágreiningur var ekki milli mín og meðnefndarmanna minna.