26.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (1388)

107. mál, úrskurðarvald sáttanefnda

Framsögumaður (Jón Magnússon):

Eg hefi ekki neitt um þetta frv. að segja um fram það, sem stendur í nefndarálitinu. Því hefir oft verið hreyft á þingi að fá sáttanefndum í hendur úrskurðarvald í smærri málum til þess að tefja ekki málin og gera ekki óþarfan kostnað. Frumvarpið er komið úr Ed. og leggur nefndin til að samþykkja það.