11.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1177 í B-deild Alþingistíðinda. (1393)

125. mál, eiðar og drengskaparorð

Sigurður Gunnarsson:

Þetta mál lá hér fyrir deildinni á síðasta þingi, en varð víst aldrei útkljáð. Nú hefir það verið lagt fyrir háttv. Ed. sem stjórnarfrumvarp, en í alt öðru formi, en það var á síðasta þingi. Eg vil því leyfa mér að stinga upp á, að 5 manna nefnd verði skipuð í málið, er því hefir verið vísað til 2. umr.