10.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (1402)
48. mál, stýrimannaskólinn
Framsögum. (Bjarni Jónsson):
Eg hefi sagt alt það í nefndarálitinu, sem þörf er á að gera grein fyrir. Breytingar þær, er frumv. fer fram á liggja meðal annars í því, að krafan til minna prófsins skuli ná til veldis og róta. Því að það þurfa menn að kunna, áður en þeir geta lært og skilið grundvallarsetningar þríhyrningafræðinnar. Eg hefi átt tal við skólastjórann og kennara skólans um þetta og spurt þá, hvort þetta væri ekki þeim að skapi. Þeir sögðust vera vanir að kenna svo og þætti þeim betra að ákvæði væri sett um það, til þess að lærisveinarnir gætu ekki sagt, að þeim væri kent meira en krafist væri. Þá er því og skotið inn í frv., að ítarlegrar þekkingar á þríhyrningum skuli krafist til meira prófsins. Aðalbreytingin liggur þó í því, að í 4. gr. er felt burtu, að danski stýrimannakensluforstjórinn skuli velja verkefni í skriflega prófinu. Slíkt er ekki skylda þess manns, auk þess harla óþarft að sækja mann út yfir hafið til þess, og ef satt skal segja er það þjóðarsmán. Eg mundi sjálfur hafa komið með þessa breytingu, en stýrimannaskólastjórinn kom heim til mín og bað mig um það. Sagði hann, að þetta væri vantraust til sín og skólans.