10.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1191 í B-deild Alþingistíðinda. (1423)
30. mál, laun sóknarpresta
Sigurður Sigurðsson:
Eg vil að eins leyfa mér að gera grein fyrir hinni stuttu, einkennilega stuttu, breyt.till., sem eg hefi leyft mér að koma með á þgskj. 158. Tillagan fer fram á það, að í stað 22 ár komi 24 ár, er presturinn hafi gegnt embætti.
Eg kannast við það, að frv. sjálft sé til bóta, og grundvöllur þess miklu eðlilegri og réttmætari heldur en er í núgildandi lögum um laun presta. Brtill. mín haggar ekki við grundvelli frumv. Stj.frv. fór fram á það, að laun presta væru 1500 kr. eftir 10 ára þjónustu, en 1700 kr. eftir 20 ára þjónustu. Hv. Ed. breytti tölum þessum þannig, að í stað 10 ára kæmu 12 ár, en í stað 20 ára 22 ár. Það hefir ef til vill ekki mikla þýðingu, að hlutföllin hafa raskast, en hitt virðist þó eðlilegra, að 22 ár séu færð upp í 24 ár. Í sjálfu sér er breytingin ekki mikil, en miðar þó fremur í sparnaðaráttina.
Þegar ræða er um það, að létta óeðlilegum gjöldum af mönnum til prests og kirkju, þá er viðkvæðið, að við það tapi prestlaunasjóðurinn; en það hefir þær afleiðingar, að landssjóður verður að leggja honum meira fé en ella. Þessi breyt.till. mín miðar nú einmitt að því, að draga úr útgjöldum prestlaunasjóðsins. Hins vegar verður ekki séð, að hún baki prestastéttinni eða einstökum mönnum innan hennar neinn ójöfnuð eða óréttlæti. Hér er að eins að ræða um að koma á réttum hlutföllum og samræmi, og leiðir af því dálítinn sparnað fyrir prestlaunasjóð, er talist getur meðmæli með tillögunni.