21.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1207 í B-deild Alþingistíðinda. (1456)

20. mál, skoðun á síld

Framsögumaður (Björn Þorláksson):

Þetta frumvarp er komið hingað frá efri deild, og miðar að því að gera síld þá, sem aflast kann milli Langaness og Horns, að betri og vandaðri vöru. Þetta er mjög þýðingarmikið mál, því svæði þetta er aðalsíldarveiðasvæði landsins. Nefndinni finst að frumvarpið sé óglögt orðað, en þó ekki svo að ástæða sé til að gera breytingartillögur við það, og hrekja það aftur upp til Ed., því þá gætu menn átt á hættu, að málið dagaði uppi. Nefndin leggur því einhuga það til, að frumv. sé samþykt, eins og það er.