03.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1215 í B-deild Alþingistíðinda. (1467)

27. mál, Maríu- og Péturslömb

Jóhannes Jóhannesson:

Eg tók það fram áðan, að þessar kvaðir hvíldu alls ekki á jörðunum sjálfum eða eigendum þeirra, heldur ábúendum. Þær eru persónulegar kvaðir á þeim, og þess vegna láta eigendur jarða sig ekkert um þær varða, nema þeir séu þá ábúendur þeirra um leið. Það mundi því ekki verða mikið notað, þótt mönnum yrði gert unt að losna við þessa kvöð,

Ef áætla má lambsfóðrið á 4½ kr., fer alt þetta gjald ekki fram úr 300 kr., og litlar líkur eru til þess, að lambsfóður stigi í verði til muna fyrst um sinn.

Um prestsmötuna er alt öðru máli að gegna, en um lambsfóðrin. Hún er allþungur skattur og hún hvílir einmitt á jörðunum, því að allar leigur af staðarkúgildunum ganga til prestanna. Eigendur jarðanna geta því ekki leigt þær, nema fyrir mun lægra afgjald en ella. Og séu þeir sjálfir ábúendur, þá verður sama uppi á teningnum, þeir verða þá að borga sjálfir.

Háttv. þm. Snæf. (S. G.) gerði þá fyrirspurn til mín, hvort eg áliti að prestar austanlands mundu vera ágjarnari en þeir gerast annarstaðar. Eg gat þess í fyrri ræðu minni, að kvaðir þessar mundu hafa fallið niður annarstaðar vegna þess, að prestar hafi skirrst við það sjálfir að ganga eftir slíku. Og þar sem þær nú eru hvergi til nema á þessum fáu stöðum eystra, þá getur varla verið um annað að ræða, en að eitthvað fastar hafi verið gengið eftir þeim í fyrndinni þar en annarstaðar. En hins vegar er svo langt síðan, að þetta tekur ekki til þeirra presta, er nú lifa, svo að þótt hinn háttv. þm. hafi verið þar klerkur fyrir 15—20 árum, þarf hann ekki að taka það til sín.

Vænti eg svo þess, að þetta mál verði sett í nefnd og gangi svo sinn gang gegnum þingið og verði afgreitt sem lög. Það er mál til komið.