29.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1236 í B-deild Alþingistíðinda. (1487)
28. mál, sala kirkjujarða
Jón Sigurðsson:
Þegar. lögin um að leiguliðum þess opinbera væri gefinn kostur á að kaupa ábúðarjarðir sínar, voru sett, þá var það tilgangur laganna, að menn mundu hafa meiri hvöt til þess að rækta jarðirnar betur og gera meiri jarðabætur á þeim, þegar þeir ættu þær sjálfir og væru vissir um, að arðurinn af vinnu sinni kæmi niðjum sínum að notum. Þessi tilgangur var góður og lofsverður, en hann hefir ekki alstaðar komið að tilætluðum notum og sumstaðar verið misbrúkaður, því þegar litið er á það, að með þessum lögum var veitt heimild til þess að selja jarðir, sem landið hefir átt frá ómuna tíð og margar þessara jarða voru úrvalið úr jörðum alls landsins, þá var það jafnframt skylda löggjafarvaldsins að reisa skorður gegn því, að þessi heimild, sem lögin veittu til jarðasölu væri misbrúkuð. Því það er óforsvaranlegt að fleygja út dýrum jörðum fyrir hálfvirði, eins og reynsla er fyrir, að sumstaðar hefir verið gert. Eg vil þó ekki segja, að þetta frumvarp sé með öllu óbrúkandi, það getur staðið svo á, að einhvernstaðar sé eitthvert smákot, sem ábúandi sá, sem nú býr á, eigi rétt á að fá keypt.
Framsögumaður minni hl. (H. G.) gat þess, að ekki væri gott að sjá af skránni, hvað eftirgjaldið væri. Það má þó sumstaðar gera sér grein fyrir hversu hátt það er og einnig sér maður, að eign kirkju hefir verið seld fyrir lægra verð en maður gat búist við. Við skulum taka jörð eins og Gilsbakka. Hann er seldur fyrir 5500 kr. Laxveiði jarðarinnar er leigð Englendingi fyrir 300 kr. á ári og Lambatungur eru leigðar fyrir 30 kr. á ári. Þetta eru aukatekjur fyrir utan eftirgjaldið. Afborgun og vextir er 297 kr. á ári. Kaupandinn hefir líka 3 kr. afgangs árlega, þegar hann hefir borgað afborgun og vexti. Hér fylgdi með fjalllendi, sem árleg leiga var eftir 30 kr. En skömmu eftir að hinn núverandi eigandi hafði keypt jörðina, seldi hann þetta fjalllendi fyrir 800 kr. Eg skal geta þess, að kirkja fylgdi með í kaupinu, söfnuðurinn tók kirkjuna að sér nokkrum dögum eftir, að hann hafði keypt jörðina. Ef hreppsnefnd hefði farið þannig með eignir hreppsins, þá hefði hún fengið ámæli og það hefði verið að maklegleikum.
Þá hefir sala sumra jarðanna í Arnarstapaumboði verið töluvert athugaverð. Sveinsstaðir undir Jökli voru seldir fyrir 1900 kr. Ábúandinn hafði 200 kr. árlega fyrir mótak. Alveg eins var með Brekkubæ, þar er tún ágætt og mjög mikil útiganga. Sú jörð var seld fyrir 500 kr. En þó tekur út yfir, þegar einhver bezta jörðin í allri Staðarsveit og þótt víðar sé leitað, Kálfárvellir með Kálfárvallakoti, eru seldir fyrir 2000 kr. Það hefði verið sök sér, ef þessi kaup hefðu komið ábúandanum að góðu, en hér er sagt, að annar maður hafi staðið á bak við kaupin en ábúandinn verið notaður sem leppur. Og það verð eg að segja, að það er eitt af því óviðkunnanlegra, þegar farið er að nota ábúandann sem lepp af hinum og þessum gróðabrallsmönnum, og það er þá sannarlega ástæða til þess að setja varúðarreglur gegn því, ef hægt væri, að jafnauðvelt sé og hingað til hefir verið að ná beztu jörðunum frá landssjóði, og það er nauðsyn á því fyrir stjórnina að fara gætilegar í söluna en hún hingað til hefir gert.
Að mínu áliti þá gerir það ekki mikið, hvorki til né frá, hvort frumv. verður samþykt eða ekki, því það hefir verið gengið alt of langt í jarðasölunni, og allar beztu jarðirnar, sem mest eftirsjón er í, eru seldar, og lítil eftirsjón í flestum þeim eignum, sem eftir eru. Það getur staðið svo á, að það sé sanngjarnt, að heimilað sé að selja kot eða hjáleigu frá kirkjustaðnum. Vitanlega mun þess konar sala helzt eiga sér stað, þar sem presturinn hefir slept hendi af jörðinni og þarf hennar ekki með við not höfuðbólsins.
Það er ákveðið í þessu frumvarpi, að stjórnin skuli leita álits hreppstjóra og umboðsmanns jarðarinnar, og það ætti að vera til bóta, því stjórnin mun fara eftir þeim upplýsingum, sem hún álítur beztar. En hingað til hefir stjórnin ekki fengið nógar upplýsingar um jörðina, eða ekki fengið upplýsingar frá nógu mörgum hliðum, því þeir sem um málið hafa fjallað, hafa allir hallast á sömu sveifina, og þegar svo er, er ekki furða þó útkoman hafi einkennilegan lit.
Framsögumaður minni hlutans (H. G.) talaði um, að það væri sorglegt, ef hreppstjóranum og prestinum lenti saman, af því að sitt litist hvorum um söluna. En þeir hafa starfað svo lengi saman, að eg er ekki hræddur um, að þeim lendi fremur saman út úr þessu máli en öðrum málum. Bezt hefði verið, að engin jörð hefði verið seld nema með sérstökum lögum í hvert skifti. En úr því að beztu höfuðbólin eru seld og töluvert los komið á jarðeign landssjóðs, þá er ekki ástæða að nema nú staðar. Með vaxandi þekkingu á málinu, má gera ráð fyrir, að gætilegar verði farið, en hingað til hefir átt sér stað, og ekki alt tekið trúanlegt og þar sem sérstaklega stendur á, má gera ráð fyrir, að öll skilríki verði heimtuð, sem kostur er á. Og úr því þær jarðir eru seldar, sem mest eftirsjón er að, þá álít eg, að það megi eins vel selja þær eignir, sem eftir eru.