30.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (1489)
28. mál, sala kirkjujarða
Framsögum. minni hl. (Hálfdan Guðjónsson):
Eg get ekki svo sem skyldi átt orðastað við háttv. þm. Mýr. (J. S.). En ekki er eg í vafa um að orð hans þurfa leiðréttingar við og andmæla. Hins vegar brestur mig fullkomlega nægilegan kunnugleika, þar sem hér er að ræða um sölu á nafngreindri jörðu. En það hlýtur honum og öðrum að vera skiljanlegt, að þar sem þessari jörð fylgir laxveiði í á, og á þessi hefir síðustu árin verið leigð útlendingum fyrir þó nokkuð fé, þá getur enginn kaupandi látið sér til hugar koma að kaupa fyrir það verð, sem miðað er að miklu leyti við leigu þá, sem nú fæst eftir veiðiréttinn, því vel getur svo farið, að þeir sem nú leigja þessa ársprænu, segi upp samningum, þegar minst varir, og hann geti ekki leigt hana aftur. Til eigin afnota getur veiðiréttur þessi vel verið lítils virði eða einkis.
Þá er og þess að gæta, að þegar jörð þessi var seld, þá fylgdi það með í kaupunum, að kaupandi tæki við kirkjunni, sem stendur þar og tækist á hendur allar skyldur gagnvart henni. Gat það verið allþung kvöð, sem vandi er að meta til verðs eða frádráttar frá jarðarverðinu. Þótt kaupandinn hafi síðan með sérstökum samningum afhent söfnuði kirkju þessa, þá sannar það ekkert annað en það, að hann muni vera vinsæll maður og vel metinn, en ekki hitt, að kirkjukvöðin hafi ekki verið eða getað verið allþung byrði á jörðinni, enda óvíst hvað hann hefir orðið að leggja fram með kirkjunni við afhendinguna.
Þá skal eg svara háttv. framsögum. meiri hl. (St.St) fáum orðum. Eg vissi að honum var þetta kappsmál, en fyrir því ætti hann ekki að rangfæra neitt. Hann sagði að eg hefði í landbúnaðarnefndinni verið hlyntur sölu þjóðjarða. Þetta er rétt hermt, en hinu mótmæli eg, að hafa verið fylgjandi þessu frumvarpi á síðasta þingi.
Þá sagði hann, að útreikningar okkar væri ekki réttir, þeir væru of lágir, því hann vissi til að jarðir hefðu selst miklu hærra — á 3. hundrað kr. hundraðið — en þá verður hann að gá að því, að við tölum hér ekki um einstök tilfelli, heldur tökum meðalverð, enda brestur mig að minsta kosti kunnugleika til að vita um verð hverrar jarðar út af fyrir sig.
Þá sagði hann, að hjáleigubændum væri nú mjög misboðið; býli þeirra höfð að fótaskinni. Þetta er ekki rétt, alment mælt, en hinsvegar er það engin sönnun, þó prestur, sem býr á góðri jörð sé ekki vel efnum búinn, því oft eru hjáleigukotin fult svo affarasæl og stóru jarðirnar.
Um ummæli hans út af innheimtu og öðrum kostnaði við þessar jarðir skal eg ekki tala. Þó hygg eg, að þar hafi kent misskilnings hjá honum, því að umboðskostnaður kirkjujarða er, eins og kunnugt er, allur annar en þjóðjarða, þar sem hann er 6% af hinum fyrri, en 16% af hinum síðarnefndu.
Þá talaði hann um það, að frá manni í landbúnaðarnefndinni hefði komið tillaga um að veita leiguliðum þjóðjarða húsabótastyrk. Eg hélt nú ekki að hann mundi hafa á móti því, þótt landssjóður bætti hag leiguliða sinna. Skal eg svo ekki lengja umræður meir.