04.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (1492)

28. mál, sala kirkjujarða

Framsögum. meiri hl. (Stefán Stefánsson):

Eg get ekki orðið við tilmælum háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) um að taka þetta frv. aftur. Hér er farið mjög gætilega af stað, og það svo að ekki eru hinar allra minstu líkur til, að það nokkurntíma geti leitt til vandræða, eða orðið bagalegt fyrir prestsetrin; við því er sleginn fullkominn varnagli í frv. og hvað viðvíkur lögunum um sölu þjóðjarða og sömuleiðis lögunum um sölu kirkjujarða, þá er umboðsvaldinu eða landsstjórninni með þeim veitt langtum ótakmarkaðra vald en gert er með þessu frv., og hafa þau eigi að síður orðið til mjög mikils gagns fyrir landsmenn, en mér ekki vitanlegt um nokkurt tilfelli fyrir því gagnstæða. Þessi varfærni því fremur gerð til samkomulags í nefndinni, en að það geti álitist beint nauðsynlegt. Hvað því viðvíkur, að opinberar jarðeignir hafi verið seldar fyrir of lágt verð, þá hygg eg, að það séu einhverjar sérstakar undantekningar, sem þá getur verið álitamál um, en svo eru líka dæmi þess, að þær hafa verið seldar allmikið yfir venjulegt gangverð. Á þetta sér einkum stað með þær jarðir, sem stjórnin hefir selt yfir matsverð, og með því raskað réttum hlutföllum og söluverði jarða í sömu sveitinni. Annars vil eg benda á í þessu sambandi, að mér virðist landstjórnin hafa gert fullmikið að þannig lagaðri jarðasölu, án þess að kveðja til yfirmatsmenn.

Þar sem það var við 2. umræðu gefið í skyn, að eg nú væri orðinn mótfallinn því, að hið opinbera legði til húsabóta, en þó fylgt því fram í öðru máli, þá er þetta hreinn misskilningur, sennilega orðinn til af því, að eg hefi getið þess, að afgjaldið af þjóðeignunum rynni ekki alt í landssjóðinn, og get eg að þessu leyti vísað til landsreikn. 1908 og 1909 þar sem það er um ? af tekjunum, sem fer til innheimtu og annars kostnaðar.

Skal eg svo endurtaka það, að frumvarpið tek eg ekki aftur; það verður þá heldur að falla hér í deildinni.