04.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1248 í B-deild Alþingistíðinda. (1497)

28. mál, sala kirkjujarða

Framsögum. meiri hl. (Stefán Stefánsson):

Ein af aðalástæðum hv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) móti jarðasölunni skildist mér vera sú, að þjóðjarðir hafi verið seldar fyrir lágt verð. En mun það ekki eiga rót sína að rekja til þess, hvernig þær hafa verið setnar, áður en salan fór fram, og benda einmitt í þá átt, að sjálfsábúðin muni vera heppilegust, bæði hvað snertir góða ábúð og aukið álit á jörðum yfirleitt, og því ein veruleg ástæða í þá átt að hlynna sem mest að því, að sem allra flestir eigi ábýli sín. Og þó að einstöku jarðir seldust lægra en svarar 100 kr. fyrir jarðarhundraðið, þá er þar með ekki sagt, að skaði sé að sölunni, þegar litið er til þess, hvernig með jörðina hefir verið farið.

Að jarðir séu alment of lágt metnar af matsmönnum virðist mér fremur ólíklegt, þar sem þeir í hverju einstöku tilfelli verða að staðfesta þá matsgerð fyrir rétti. Þegar svo er, og þar sem gera má ráð fyrir, að matsmennirnir séu sannvandaðir og ærukærir menn, þá virðist fengin full trygging fyrir réttlátu mati.

Eg sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál að sinni, en vona að það nái samþykki deildarinnar.