04.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1252 í B-deild Alþingistíðinda. (1505)
29. mál, víxilmál
Flutningsm. (Björn Kristjánsson):
Eg mintist á við 1. umr., í hvaða skyni frumv. væri borið fram. Breyttill. á þgskj. 79 er gerð eftir bendingu frá háttv. þm. Vestm. (J. M.) um að frumv. þetta beri heldur að skeyta við víxillögin, en við lögin um varnarþing í skuldamálum. Að öðru leyti get eg vísað til þess, sem eg sagði við 1. umr. Frumv. á aðallega að létta starf banka og sparisjóða og gefa þeim sama rétt sem öðrum, er taka þátt í viðskiftalífinu. — Eg vona að frumv. verði samþykt mótmælalaust.