03.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1255 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)
126. mál, læknaskipunarmál (Reykjahérað)
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Í hitt eð fyrra lágu hér fyrir háttv. deild nokkrar beiðslur um ný læknahéruð, og þau sum fullkomlega nauðsynleg. Nokkrar voru veittar, en þessum þrem var frestað — eg vil ekki segja synjað, því að flestir bjuggust við að þeim yrði sint þegar á næsta þingi, og sumir hétu því, þeir er þá greiddu atkvæði á móti þeim.
Eg skal geta þess um Norðfjarðarhéraðið, að það hefir nú sýnt sig síðan, hver þörf er á því, því að í vetur sem leið lá við sjálft, að læknir og tveir menn aðrir yrðu úti þar. Rötuðu þeir í hina mestu hrakninga, þótt þeir kæmust af um síðir, læknirinn fyrst en hinir síðar.
Eg vil nú vona, að nefnd verði skipuð í þetta mál, og þangað vísað öllum slíkum tilmælum, svo að hún geti metið rökin fyrir hverju um sig á sínum tíma.