07.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1256 í B-deild Alþingistíðinda. (1513)

43. mál, læknaskipun

Flutningsm. (Jón Jónsson 1. þm. S.Múl.):

Eg vil að eins minna háttv. deild á það, að þetta frv. er ekki nýtt hér í þinginu. Það lá hér fyrir síðast í hitt eð fyrra. Og þá vil eg eins minna á það, að framsögum. þeirrar nefndar, sem þá var skipuð í það, gat þess, að hann og aðrir, sem þá voru því mótfallnir, að þetta yrði að lögum, myndu taka því vel á næsta þingi.

Skal eg svo ekki þreyta háttv. deild á frekari meðmælum með frv. Vona að því muni nú betur tekið en áður og legg til, að því sé vísað til nefndar, sem þegar er skipuð í annað mál svipað þessu — eg man nú ekki hvað hún heitir.