07.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1266 í B-deild Alþingistíðinda. (1538)

46. mál, lækningaleyfi

Bjarni Jónssou:

Öllu má nú ofbjóða, og það verð eg að segja, að mér ofbýður slíkt, að í siðuðu landi skuli geta orðið um það deilt, hverjir skuli hafa svokallaða »veniam practicandi« eða alment leyfi til þess að fara með læknisdóma.

Á nú að fara að setja innsigli þings og löggjafar á þá náunga, sem lifa af því að skrafa sig inn á fáfróða alþýðu, og selja henni spritblöndu með einhverri »djöflisku« utaná, og standa þannig í vegi fyrir því, að menn leiti sér lækninga, þar sem þeir eiga að gera það? Eg hefi aldrei heyrt öðrum eins firnum haldið fram í alvöru neinstaðar annarstaðar, hvað þá á þingi. Og út af mótbárum háttv. þm. (B. Kr.) sem síðast talaði, þeirri að læknarnir okkar þektu ekki aðrar lækningaleiðir — t. d. einhverjar magnetiskar lækningar — þá vil eg spyrja hann, hvort honum detti í hug, að hann eða aðrir hér hafi lesið meira um þau efni, en Guðm. Magnússon, Guðm. Hannesson og Guðm. Björnsson, sem bæði eru gáfumenn og fróðleiksmenn. Og þar sem hann brigslar skólagengnum læknum um þekkingarskort, þá var það satt, að þeir þekkja ekki allir hjátrúna í landinu og lykilinn að buddu almennings. En þessi náungi með fallega nafnið á sinni spánnýju læknisaðferð, hann á að hafa leyfi til þess að smíða sér atvinnu úr heimsku mannanna, og leiða menn í þá hættu, að ástvinir þeirra deyi, eða verði örkumla menn, eins og altítt er, að hlotist hefir af þessum fíflshætti.

Það þýðir ekki að berja það fram við alvörumenn með fullu viti, að til séu svo og svo margar leiðir ólíks eðlis. Hér er ekki um annað að ræða en »suggestion«, eða utanboð. Og hver vill nú standa upp og segja mér, að læknarnir okkar, Guðmundarnir, og hvað þeir nú heita, þekki hana ekki?

Eða myndi sá, er aldrei hefir numið einföldustu undirstöðuatriði sálarfræðinnar, vera færari um að leika þá list heldur en lærðir læknar. Þetta verður aldrei fært fram sem ástæða gegn frv., og það þótt allir veraldarinnar Immanúelar væru saman.

Eg veit, að mér muni verða brugðið um vanþekking á læknislistinni, en ef þessi ræða getur nú ekki orðið andleg lækning á háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.), þá er hann ólæknandi.

Eg segi ekki þessi orð til þess, að lýsa fylgi mínu við frumvarpið eða ætli að því megi ekki breyta, heldur eingöngu af því, að það væri hneyksli, ef annað aðeins og þetta stæði ómótmælt í þingtíðindum nokkurrar þjóðar.