07.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í B-deild Alþingistíðinda. (1542)
46. mál, lækningaleyfi
Eggert Pálsson:
Eg get nú látið það inn um annað eyrað og út um hitt, sem þeir háttv. þm., er talað hafa um þetta mál hafa sagt um læknislistina yfir höfuð og framfarir hennar. Eg verð að leggja þá alla að jöfnu, að því er kemur til þekkingar þeirra á heilbrigðismálum; get ekki tekið þar einn fram yfir annan, og vænti þess, að þeir virði mér það til vorkunnar.
Eg byggi skoðun mína á þessu máli eingöngu á því, hvernig þjóðin lítur á það. Og eins og þegar hefir verið tekið fram, dylst mér það ekki, að hún hefir hingað til ekki viljað missa skottulæknana. Og svo mun vera enn. Og er það sízt að furða. Læknarnir hafa hingað til verið fáir og oft misjafnir. Það verður að taka tillit til þessa, þegar dæma skal um, hvort slík lög sem þessi, er frv. fer fram á, muni geta átt við hér hjá oss eða ekki.
Eg get ekki varist þeirri hugsun, að þessi lagasmíð sé að minsta kosti meðfram til þess gerð, að vernda réttindi hinnar lögskipuðu læknastéttar, til þess að hún eigi vísari tekjur sínar. Eg veit ekki, hvort þetta er rétt, en sé svo, að þetta liggi á bak við, þá mun afleiðingin verða sú, að þessar leyfisveitingar landlæknis verða harla fáar, hvort heldur um fullkomið eða takmarkað leyfi væri að ræða. Og þar sem nú hinir lögskipuðu læknar eru bæði strjálir og misjafnir, þá verður afleiðingin sú, að þeir, sem þessum fáu og misjöfnu læknum tekst ekki að lækna, verða sama sem skyldaðir til að deyja drottni sínum, þótt aðrir bæði vildu og gætu hjálpað. Það eru þessar kringumstæður, sem oss ber að taka tillit til. Við verðum að gæta þess, að við getum ekki haft svo marga lækna, sem þörf væri á, og svo einnig hins, að þeir eru og verða æði misjafnir, svo að það getur ekki verið holt að gefa læknastéttinni takmarkalaust vald yfir lífi voru og limum, með öðrum orðum afneita allri hjálp frá öllum öðrum, þótt þeir kynnu að geta bjargað, og það oft í tilfellum, sem sjálfir hinir lögskipuðu læknar eru gengnir frá.
Það hefir verið minst hér á ýmsar lækningaaðferðir, sem tíðkist í öðrum löndum og taldar eru af meðmælendum þessa frv. sem eingöngu hjátrú og hindurvitni, er aldrei geti gert gagn en ávalt skaða. Og um það skal eg ekki þrátta, á því hefi eg enga þekkingu, hvað sem h. h. þm. líður með tilliti til þekkingar á þeim efnum. En ef svo er hvernig stendur þá á því, að aðrar þjóðir valdbjóða ekki eitthvað svipað því sem farið er fram á í þessu frv.? Eigum vér að vera svo langt á undan öllum öðrum þjóðum, að skipa fyrir með lögum um það, hverjir megi fara með lækningar, eða stöndum við þeim svo langt að baki ? Um annað af tvennu hlýtur að vera að ræða, ef frv. þetta verður að lögum. En eg vona að ekki komi til þess, því hér er um óeðlilega takmörkun á persónulegu frelsi manna að ræða. Eg skil ekki annað, en menn ættu að mega leita sér heilsubótar hvar sem þeir vilja og hvar sem hægt er og svo hygg eg, að sé alstaðar annarsstaðar, nema ef það verður hér.
Sennilega líta háttv. flutningsm. þessa frv. svo á, að alþýða hér á landi sé þeim mun verri og fáfróðari en annarsstaðar, að hér þurfi sérstök lög til þess að fáfræðin verði henni ekki til skaða. En eg fylgist ekki með í þeirri stefnu, tel hana þvert á móti fjarri öllum sanni. Noti alþýða manna hér meira fáfróða skottulækna heldur en í öðrum löndum, þá stafar það ekki af fáfræði hennar, heldur af hinu, að hinir lögskipuðu læknar vorir eru bæði fáir og oft og einatt ónýtir. Þar sem hægt er að ná í nýtan, lögskipaðan lækni ganga menn ekki fram hjá honum. En þar sem hann annað hvort er ekki til eða þá reynist handónýtur, þar hljóta menn að leita einhverra annara bragða til þess að reyna að bjarga við lífi eða heilsu sjálfra sín eða annara. Eg skal svo ekki fjölyrða meira um þetta mál.
Eg skal ekki gera það að ágreiningsmáli, hvort nefnd verður sett í það eða eigi. Það gæti hugsast, að nefndin gerði þær breytingar, er til umbóta gætu horft á því, t. d. þær, að í stað landlæknis veiti héraðsbúar leyfið. Það væri þó óneitanlega nær sanni. Þeir eru næstir og hafa því bezt vit á því, hvað þeim kemur að gagni og hvað ekki.