26.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1280 í B-deild Alþingistíðinda. (1551)
46. mál, lækningaleyfi
Jón Jónsson 1. þm. N.-Múl.:
Mér líkar það ekki hjá háttv. nefnd, að hún skuli hafa veitt smáskamtalæknum rétt til þess að káka við lækningar. Eins og frumv. kom frá háttv. þm. Vestm. (J. M.) þá var það mjög skynsamlegt. Mér finst, að þeir menn, sem hafa tekið próf í læknisfræði, verði þó að minsta kosti einir að hafa leyfi til þess að stunda lækningar. Það er alveg nauðsynlegt að útiloka þessa þekkingarlausu gutlara. Alþýða manna er fáfróð um lækningar og það gæti vel farið svo, að menn leituðu ráða hjá þessum mönnum og sjúklingurinn dæi þess vegna. Og þegar um hættulega og næma sjúkdóma er að ræða, þá ætti löggjafarvaldið ekki að vera að stuðla að því, að menn leituðu til þessara manna, sem ekki hafa neina þekkingu í sjúkdómafræði eða á lækningum.
Eg sé að 1. gr. hefir verið breytt í samræmi við það, sem mun verða ofan á hjá okkur innan skamms. En mér finst nauðsynlegt, að smáskamtalæknarnir hverfi alveg úr frumv., því það er betra að vera læknislaus en að hætta lífi og heilsu í hendur þessara manna.