26.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)
46. mál, lækningaleyfi
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Eg held að það sé bygt á misskilningi, er menn halda, að það sé tilgangurinn með þessu frumv. að meina mönnum að leita sér læknishjálpar, heldur er hann að eins sá, að fyrirbyggja að menn geri sér skottulækningar að atvinnu. Eg get ekki verið því fylgjandi, að undanskilja smáskamtalækna og sé ekki, að það sé mætara, að þeir drepi menn en aðrir, því það gera þeir, bæði af vanþekkingu og samvizkuleysi. Vil eg nú segja eina sögu því til sönnunar.
Fyrir 4 árum varð maður nokkur norður í Húnavatnssýslu veikur. Leitaði hann þá til læknis hér, sem sagði honum, að það yrði þegar að gera holdskurð á honum. Maðurinn kveinkaði sér við því og leitaði til smáskamtalæknis hér í bæ. Sagðist sá skyldu lækna hann með meðulum og gaf honum meðalaglösin a, b, c, og svo frv. Meinsemdin fór vaxandi og nú eftir 4 ár er hún orðin eins stór og mannshöfuð. Liggur maðurinn nú á spítala og engin von til að hjálpa honum. Hver hefir drepið þennan mann? Enginn annar en smáskamtalæknirinn, sem taldi honum trú um, að ekki þyrfti að skera hann upp, heldur gæti hann læknað hann með meðulum. Hefir hann með samvizkuleysi sínu klófest fé mannsins og leitt hann til bana.
Af ofangreindum ástæðum get eg ekki greitt atkvæði með því að undantaka smáskamtalækna.