28.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1295 í B-deild Alþingistíðinda. (1566)

46. mál, lækningaleyfi

Bjarni Jónsson:

Eg skal leyfa mér að geta þess að ummæli háttv. þm. Vestm.

(J. M.) um að landlæknirinn vill heldur að frv. verði samþykt án breytingartillögunnar, en að það verði felt, er í alla staði rétt. Landlæknirinn er alls ekki ánægður með að frv. verði samþykt án breyttill., þótt hann vilji það heldur en ekki neitt. Það er því harla kynlegt, að háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) skyldi segja um háttv. 1. þm. N.-Múl. (J. J.) að hann hafi ekki vit á þessu máli.