09.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1313 í B-deild Alþingistíðinda. (1592)

45. mál, stofnun lagaskóla á Íslandi

Flutningsm. (Jón Magnússon):

Eg vil benda háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) á það, að hans frumv. ber saman við mitt, því að bæði gera ráð fyrir 5 árum. Annars hygg eg, að hans frumv. sé að eins borið undir lagaskólakennarana, en háttv. þm. hafi »diktað« það sjálfur. Ástæðan móti breyt.till. er sú, að með því að lengja frestinn kemur fram ástæðulaus samkepni við lagaskólann, og það er varahugavert. Þó skal eg játa, að veita mætti stjórninni heimild að veita undanþágu, ef sérstaklega stæði á, enda kæmu meðmæli lagaskólans hér. Eg vona að málið fái að ganga til 3. umr.