14.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (1616)

67. mál, réttur kvenna

Bjarni Jónsson:

Eg vil leyfa mér að gera nokkrar athugasemdir við ræðu hins háttv. þingmanns, er síðast talaði. Hann álítur, að karlmenn séu hæfari til þess, að leysa þau störf af hendi, sem þeir nú einir hafa með hönd­um en kvenmenn. Þetta getur verið. En hér er ekki farið fram á að veita öðrum konum hluttekningu í þessum störfum en þeim, sem eru færar um að leysa þau af hendi. Það er ekki farið fram á í frumv. að veita þeim konum þessi réttindi, sem eru ófærar til þess að gegna þeim.

Annars mótmæli eg þeirri skoðun, að kvenmenn séu að neinu leyti síður hæf­ar til náms en karlmenn. Við getum tekið sveitabörn, sem alast upp undir sömu kjörum fram yfir fermingaraldur. Stúlkurnar eru þá engu síðri en piltarn­ir; það mundi verða erfitt að skera úr, hvort hafi meiri hæfileika.

En hvað sem líður gáfunum, þá er sannanlegt, að konur eru iðnari en karl­ar í námi og samvizkusamari. Er því full ástæða til að ætla, að þær verði samvizkusamari í embættisrekstri og er það fyrsta skilyrðið til þess, að gæta embættisins svo í lagi sé.

Þá hefir verið talað um það, að ef kona sé dómari, þá geti svo farið, að hún liggi á sæng, þegar hún þarf að gegna embætti sínu, eða kona, sem sé læknir geti ekki vitjað sjúkra, af því hún liggi á sæng. En þetta er ekkert annað og meira eða óeðlilegra, en ef læknir verður veikur. Hér er ekki ver­ið að tala um annað, en að nema bann þetta burt úr lögunum. Menn geta ver­ið alveg rólegir þess vegna, að konur fara ekki að velja sér annan verkahring en þann, sem þær eru færar um að gegna. Það er heldur ekki verið að tala um að útiloka karlmennina. Það er að eins verið að tala um að nema burt þetta ákvæði, sem bæði er óeðli­legt og heimskulegt. Og óttist menn að konur sækist fremur eftir embættum fyrir þessi lög, þá mun það reynast öfugt. Þær munu síður sækjast eftir þeim, þegar banninu er burt kipt. Byggi eg það á algengu vitundarlögmáli manna og dýra. Við þekkjum kýrnar, sem vilja eta úr næsta bás, þótt heyið sé miklu verra þar en í þeirra eigin.

Þá hefir verið talað um, að konur væru ekki eins duglegar til ferðalaga og karlmenn. Eg þekki til þess, að á Breiðafirði fóru konur í eyjar og í fiskiróðra og voru alveg eins duglegar og karlmenn. Þær eru ekki eins sterkar, en seigari og úthaldsbetri. Og einn með beztu formönnum, sem verið hefir við Breiðafjörð var kona. Og á ferðum um Breiðafjörð hefir kvenfólkið ekki eins gott tækifæri til þess að hlúa að sér, eins og ef þær væru embættismenn. Eg verð að biðja menn að taka sérstak­lega eftir 1. grein frumv. Það er ranglátt að útiloka konur frá að njóta þess styrks, sem karlmenn hafa rétt til að njóta, þegar þær uppfylla skilyrði þau, sem heimtuð eru til þess að verða hans aðnjótandi. Hvaða ástæða er nú til þess að útiloka þessar veikbygðu konur frá þessum hlunnindum, en láta þessa sterku og gáfuðu karlmenn eina verða þeirra aðnjótandi?

Það er skylda allra að stuðla að því, að bann þetta verði sem fyrst úr lög­um numið, og á þann hátt bæta fyrir órétt þann, sem kvenfólkinu hefir hing­að til verið gerður.