13.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1340 í B-deild Alþingistíðinda. (1624)

67. mál, réttur kvenna

Flutningsmaður (Hannes Hafstein):

Eg vildi að eins leiðrétta það, er háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) sagði, að það hefði verið á móti lögunum, að stúlku þeirri, er hann talaði um, var veittur námsstyrkur í Mentaskólanum. Háttv. þm. fór þar á hundavaði, eins og honum stundum hættir til, því að bannið gegn því að veita konum námsstyrk í tilsk. 7. des. 1886 á að eins við em­bættisskólana, presta- og læknaskólann, en alls ekki við hinn almenna mentaskóla.