18.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1346 í B-deild Alþingistíðinda. (1638)
66. mál, gjöld til holræsa og gangstétta í Reykjavík
Benedikt Sveinsson:
Mig furðar það, hversu lítið mál þetta hefir verið rætt hér, en eg vil ekki, að það fari þannig út úr deildinni, að það sé ekki athugað lítið eitt nákvæmar en gert hefir verið.
Þegar ráðist er í það stórvirki, að leggja steinrennur um alla Reykjavík, þá verður manni fyrir að spyrja; hvar á að taka fé til þess að gera þetta með? Það á sjálfsagt að nota gömlu aðferðina og taka lán. En nú er svo komið hag Reykjavíkur, að bærinn fær ekki lán nema með ábyrgð landssjóðs. En það liggja nú svo margar kvaðir á landssjóði í ábyrgðum, að vert væri, að þetta væri lítið eitt athugað, áður en það er samþykt.
Í frumvarpi þessu er margt, sem er mjög óljóst. Það er talað um hér í frv., að kostnaðinn skuli sumpart greiða úr bæjarsjóði og sumpart af lóðareigendum. Lóðareigendur eiga að greiða hundraðsgjald af virðingarverði húsa þeirra, sem standa við götu þá, sem holræsi er lagt í. Það er ekki tekið fram í frv., að hve miklu leyti bærinn kosti holræsin og að hve miklu lóðareigendur. Það þyrfti þó að vera skýrt og ákveðið. Ekki er heldur sagt, hvort þetta eigi að borga í eitt skifti fyrir öll eða til langframa.
Þá er það ranglátt, sem stendur í 2. gr. að lóðareigandi skuli greiða 45 aura fyrir hverja stiku af lóðinni, sem liggur meðfram götu þeirri, sem holræsi er lagt í. Það á sér víða stað einkum þar sem nýjar götur liggja yfir erfðafestulönd, að lóðirnar eru sniðskornar og kannske örmjó lóðarræma meðfram veginum, sem ekki er hægt að reisa hús á. Af slíkum skeklum þurfa menn að borga, en aftur eru þeir gjaldfríir, sem eiga lóðir á bak við. Það er hart að lóðaeigendur verða að gjalda fyrir lóðina, þótt hún hafi verið gerð ónýt, af því að gata hefir verið lögð yfir hana. Eg veit, að háttv. 2. þm. Rvk (M. B.) er þessu eins vel kunnugur sem eg. Einkum hefir þetta átt sér stað í Austurbænum. Þessum misrétti þarf að afstýra í frumv. Það þarf að undantaka erfðafestulöndin. Frumvarpið gerir ekki neinn mun á bygðri lóð og erfðafestulöndum. En eins og kunnugt er, liggja nýjar götur sumstaðar í gegnum erfðafestulönd og þau eru oftast óbygð. Er það þá ætlun frv., að eigendur erfðafestulandanna borgi fyrir það, ef holræsi er lagt í götu, sem liggur gegn um erfðafestuland?
Bæjarstjórnin hefir komið með þetta frumv. og fylgir því með miklu kappi. Eg veit, að margir bæjarmenn kunna því illa, að mál þetta hefir ekki verið rætt á neinum opinberum fundi, því að þeir líta þannig á þetta mál, að það sé ótímabært og frumv. þar að auki stórgallað.
Eg neita því ekki, að það er nauðsynlegt fyrir þrifnað bæjarins, að holræsi séu lögð í göturnar. En málið er ekki nægilega undirbúið nú. Það er enginn skaði, þótt það dragist eitt ár að samþykkja frumvarpið. Að þessu sinni á annað hvort að fella það eða taka það aftur, og leggja það svo vel undirbúið fyrir þingið næsta vetur.