18.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (1641)
66. mál, gjöld til holræsa og gangstétta í Reykjavík
Jón Magnússon:
Eg vil leyfa mér að mótmæla því, að mál þetta sé tekið út af dagskrá. Það er ekki rétt að fara svo illa með þingtímann, því mörg mál eru enn órædd, sem mikla þýðingu hafa. Það er og að öllu óþarft, því mál þetta er betur undirbúið en flest önnur mál. Það var vandlega rætt í bæjarstjórn og síðan í nefnd hér á þinginu. Þingnefndin hefir borið sig saman við bæjarstjórn og lagt málið fyrir löngu fyrir háttv. deild, svo háttv. þingmenn hafa haft nægan tíma til að átta sig á því. Það hefir enginn heimting á, að það sé tekið út af dagskrá, enda get eg ekki ímyndað mér, að menn bættu sig nokkuð á því, þó svo væri gert.
Háttv. þm. N.-Þing. (B. Sv.) hélt því fram, að það bæri að bera þetta mál undir borgarafund. Það tel eg með öllu óskynsamlegt. Hverjir ættu að mæta á þeim fundi? Ef húseigendur mættu þar í meiri hluta, mætti segja, að réttur hinna væri fyrir borð borinn, þar sem þeim hlýtur þó að vera málið viðkomandi. En ef allir atkvæðisbærir menn greiddu þar atkvæði um, þá mundi verða samþykt að leggja alla byrðina á húseigendur, því hinir eru miklu flestir. Við höfum reynslu fyrir því að leggja mál undir borgarafundi, og það hefir ekki reynst vel. Um slík mál þurfa kjörnir menn að hugsa.
Eg vona að málið verði tekið út af dagskrá. Mega þeir þingmenn sjálfum sér um kenna, sem ekki hafa áttað sig á málinu og hafa orðið of seinir með breytingartillögur sínar, og virðist mér þeir hafa fyrirgert rétti sínum.