06.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1382 í B-deild Alþingistíðinda. (1724)

92. mál, brúargerð á Jökulsá

Sigurður Gunnarsson:

Eg er á sama máli, sem háttv. 2. þm. Rang. (E. J.), að hér sé um mikilsvert nauðsynjamál að ræða. En sökum þess að hér er um mikla fjárupphæð að ræða, en hins vegar varasamt að hrapa að því að leggja brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi sakir jökulhlaupa, leyfi eg mér að stinga upp á 5 manna nefnd að lokinni umr., til þess að yfirvega málið rækilega.