29.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1420 í B-deild Alþingistíðinda. (1794)

127. mál, sala á Sigurðarstöðum

Jón Magnússon:

Háttv. þm. N.-Þing. (B. Sv.) sneiddi að mér fyrir ókunnugleik, en leiðrétti þó ekkert einasta atriði af því, sem eg sagði, enda var það alt rétt. Eg sagði, að eg væri ekki viss um barnatöluna í þessum sveitum, en það er ekki heldur hún, sem fyrir mér vakir aðallega, heldur hitt, hvort heimilt sé að selja jörðina, áður en ábúandi fer úr byggingunni. Eg bið menn að líta í lögin og segja síðan, hvort þeir hyggi leyfilegt að selja öðrum en ábúanda. Ef menn eru ekki alveg vissir um, að rétt sé að selja jörðina, án þess að ábúandi eigi kost á að nota forkaupsrétt, þá á ekki að gera það. Það er ekki heimilt að selja ábúanda jörðina, ef sýslunefndin mælir á móti; en það er engu spilt, þótt landssjóður eigi hana áfram, og ekki rétt að þingið búi til lög, sem skerða rétt einstaklingsins. Hér liggur ekkert á. Jörðin verður ekki seld ábúendum, eins og nú stendur, og það má láta hana undir skóla, hvenær sem sýnt er, að þess sé þörf, þótt landssjóður eigi hana.

Annars er eg fyrir mitt leyti mótfallinn allri þjóðjarðasölu, svo það er enn ein ástæða fyrir mig til að vera á móti till. nefndarinnar. Og eg get alls ekki tekið til greina óskir héraðsmanna að þessu leyti, því síður sem mig grunar, að þær séu sprottnar af missætti manna á milli, sem lengi hefir brytt á norður þar.