29.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1421 í B-deild Alþingistíðinda. (1797)
127. mál, sala á Sigurðarstöðum
Framsögum. (Benedikt Sveinsson):
Mig stórfurðar á lögspeki hinna háttv. lögfræðinga í þessu efni; það virðist sem þeir gleymi alveg lögunum um sölu kirkjujarða frá 16. nóv. 1907. Í 2. gr. þessara laga er það skýrt tekið fram, að ábúandi hafi ekki forkaupsrétt ef jörðin sé hentug til almenningsnota. Skal eg með leyfi forseta lesa upp nefnda grein. Hún hljóðar svo:
»Heimild þessi (?: til þess að selja ábúendum kirkjujarða ábýli þeirra) nær eigi til kirkjujarða þeirra, sem prestar sitja á, eða að áliti sýslunefndar, þar sem jörðin liggur, eru hentugar til embættisseturs, fyrir skóla, sjúkrahæli eða til annara almenningsnota« (o. s. frv.) »eða sýslunefnd hyggur jörðina sérstaklega fallna til sundurskiftingar milli margra grasbýla, og má þá eigi selja jörðina án sérstakrar lagabeimildar í hvert skifti«.
Hvað þarf frekari vitna við? Eru ákvæðin ekki nógu ljós?
Þessi lög hafa alveg eins mikinn rétt á sér, eins og lögin um forkaupsrétt leiguliða, enda verð eg að benda hinum háttvirtu lögvitringum á það, að samkvæmt 5. gr. þeirra laga á sveitarfélag forkaupsrétt hverrar jarðar að ábúanda frágengnum.
Nú er lögbannað að selja ábúanda þá kirkjujörð, sem sýslunefnd álítur hentuga til skólaseturs og gengur hann því að sjálfsögðu frá. Það væri þá kynlegur lagaskilningur, að halda því fram, að sveitarfélagið hefði forkaupsrétt hverrar jarðar í hreppnum að frágengnum ábúanda, nema það væri skólajörð, þ. e. jörð sem sérstök ástæða er einmitt til að hreppurinn eigi. — Það þarf býsna »lærða« lögfræðinga til þess að koma með þvílíkar lokleysur.