26.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1428 í B-deild Alþingistíðinda. (1813)

121. mál, sala á Presthólum

Framsögum. (Benedikt Sveinsson):

Eg geri ráð fyrir því, að ábúandinn fari þess aftur á leit, að fá jörðina keypta. Nú horfir málinu öðru vísi við en áður, og eigi annað líklegt, en sýslunefndin ljái sölunni samþykki sitt. Fyrir því vill nefndin, að stjórnarráðinu sé salan í sjálfsvald sett.