19.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1430 í B-deild Alþingistíðinda. (1818)

84. mál, færsla þingtímans

Björn Sigfússon:

Eg hygg, að réttara sé að skipa nefnd í málið. 1. þm. S.-Múl.

(J. J.) gerði lítið úr örðugleikum þeim og töfum, sem orsakast kynnu af þinghaldi á vetrum. Mér finst að hann líti ekki rétt á það mál. Að mínu áliti er fullkomin hætta á, að þm. af Austur- og Norðurlandi komist alls ekki á þing í janúar- og febrúarmánuði. Eins og allir ættu að vita, hafa á þeim tíma oft verið þar svo mikil illviðri og snjóalög, að ókleyft er öðrum en mestu göngugörpum eða skíðamönnum. Nú er það ekki svo, að allir þeir, sem kjósendur telja hæfasta til þingsetu, séu slíkir skíðamenn eða göngugarpar, að þeir séu vel fallnir til slíkra ferðalaga. Hvað samgöngum á sjó viðvíkur, þá er aldrei hættara við ströndum og öðrum óhöppum, en einmitt um þann tíma árs. Við þetta bætist svo það, að þingið verður miklu dýrara á vetrum en sumrum, bæði fyrir þingmenn sjálfa og landið alt. Hér er því um óþarfan kostnað að ræða, sem sjálfsagt er að spara, þegar ekkert gagn kemur á móti.

Enn verður að taka hér fleira til greina, sem ekki er lítilsvert, t. d. er kennarastétt landsins útilokuð frá þingsetu, meðan vetrarþing eru haldin, og má þó ætla, að sú stétt geti lagt til hæfa þingmenn, einkum þegar fram líða stundir og sú stétt verður betur mentuð. Alþýðukennarar eru allir bundnir við starf sitt fram í maí, kennarar við æðri skóla eru bundnir ennþá lengur. Að vísu sitja skólameistarinn frá Akureyri og lagaskólastjórinn á þessu þingi, en ekki er mér nein gleði að að sjá þá hér. Þeir eru ekki mikils virði fyrir skóla sína, ef það er skaðlaust, að þeir sitji hér á þinginu og feli öðrum starf sitt við skólana.

Sú ástæða hefir verið færð vetrarþingunum til gildis, að hægra væri fyrir bændur að sitja á þeim, því að á sumrum mættu þeir ekki vera að heiman. Þetta er stór misskilningur, það er alveg gagnstætt. Eg veit engan tíma hægari fyrir bóndann að hverfa frá heimili sínu en einmitt sláttutímann. Það er af því, að þá eru heimilisstörfin svo eindregin og óbrotin, ekkert annað en heyskapurinn. Þessvegna er miklu hægra að fá góðan mann til að segja fyrir þeim störfum en vetrarstörfunum; vitanlega verður að borga manninum hátt kaup. Á vetrum og vorum eru verkin margvíslegri, og vandfengnari góður maður til að gegna þeim og hafa umsjón t. d. með skepnuhirðing og öðru, sem þá kemur fyrir. Á vorin eru byggingar, jarðabætur o. fl. o. fl., sem bóndinn vill helzt sjálfur hafa umsjón með. Hann getur ekki gefið öðrum forskrift fyrir því svo vel fari. Þessi ástæða er því ekki mikils virði. Hún er þveröfug við það, sem rétt er. Eg hefi talað við marga bændur um þetta, og þeir hafa yfirleitt verið á þeirri skoðun, að vetrar- og vorþing séu til hindrunar þingsetu bænda. Af því sem eg nú hef sagt, er það auðsætt, að eg get ekki fallist á það í stjórnarfrv., að þingið byrji 15 maí, enda hélt hæstv. ráðherra því ekki fram.

Þótt mál þetta sýnist ekki umfangsmikið, álít eg samt réttara, að nefnd sé kosin í það, eins og eg sagði í upphafi.