17.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1440 í B-deild Alþingistíðinda. (1824)
84. mál, færsla þingtímans
Sigurður Sigurðsson:
Enda þótt ástæður þær, sem færðar hafa verið fyrir frumv., séu léttar á metunum, get eg þó ekki stilt mig um að fara um þær örfáum orðum, einkum þar sem hinir háttv. ræðumenn aðallega hafa beint máli sínu til mín.
Það hefir verið sagt út af því, sem eg mintist á póstana, að þeir væru ungir menn og hraustir, en sannleikurinn er sá, að þeir eru sumir hnignir að aldri og ekki heilsusterkir.
Háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.) talaði um erfiðleika þá, sem nú eru á að halda þingmálafundi, en ekkert er hægara en að halda þá á haustin, t. d. í nóv. Í öðru lagi var þess getið, að margir fundir hefðu farist fyrir í haust, af því að þingmenn hefðu ekki getað sótt þá. En hvaða þingmenn voru það? Það voru þeir þingmenn, sem búsettir voru í Reykjavík(!) Og er það eitt meðal annars vitni um, að það er neyðarúrræði fyrir sveitahéruð, að sækja þingmenn sína til Reykjavíkur.
Háttv. þm. Snæf. (S. G.) gat þess, að bændum væri ómissandi að vera heima að vetrinum. En ef menn gæta þess, að afla vel heyja á sumrin, og setja skynsamlega á, þarf ekki að hræðast veturinn, heldur má þá taka undir með skáldinu:
„Þá gengur vetur garð þinn í
sem gamall trygðavinur“.
Sami þm. hélt því og fram, að hugmyndin um að halda háskólann í þinghúsinu, mælti með frv. En okkur liggur sannarlega á einhverju öðru meir en háskóla. Meðan bændur safna skuldum í gríð og kvartað er um horfelli og margvíslegar aðrar misfellur á hag landsmanna, virðist háskólastofnun ekki vera bráðnauðsynleg. En jafnvel þó svo væri, þá er hægt um húsnæðið, því ekki þarf annað en innrétta loftið í mentaskólanum til að byrja með fyrir háskólann.
Háttv. þm. A.-Sk. (Þ. J.) hélt því fram, að sveitamenn væru útilokaðir frá því að fylgjast með í því, sem gerðist á vetrarþingunum. Í hitt eð fyrra voru þó fleiri gestir hér um þingtímann en nokkru sinni áður. Og bændur leika sér ekki um sláttinn að því að fara til Reykjavíkur og hlusta á það, sem fram fer í þingsalnum. En fyrir þá, sem vilja láta útlendinga, sem ekkert skilja, hlusta á sig, er sumartíminn hentugastur.
Undarleg er sú ástæða, að menn geti ekki eins vel fylgst með störfum vetrarþings. Nú er þó símasamband komið á við flest héruð landsins, er eigi var áður, og póstgöngur svipaðar sumar og vetur. (Þorleifur Jónsson: En strandferðaskipin). Hvað þeim viðvíkur veit eg ekki til annars en blöð og tímarit liggi á viðkomustöðunum þangað til landpóstar hirða þau.
Eg skal nú ekki þreyta hv. þingdm. lengur. Þær ástæður, sem fluttar hafa verið fram fyrir færslu þingtímans eru allar léttvægar.
Að endingu skal eg geta þess, að það var óþarfi fyrir hv. þm. Snæf. (S. G.) að fara að minnast á búfræðinga Búnaðarfélagsins hér í þessu sambandi. Eg hefi þá alls ekki fyrir augum, þegar eg mæli á móti færslu þingtímans, heldur lít eg þar á, hvað hentugast er fyrir bændur.