16.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1453 í B-deild Alþingistíðinda. (1836)

84. mál, færsla þingtímans

Jón Jónsson 1. þm. S.-Múl.:

Eg hefi komið fram með breyt.till. við frv. þetta og skal eg leyfa mér að fara fáum orðum um hana. Skal eg geta þess, að skoðun mín á aðalefni þessa máls er, þrátt fyrir breytingartillöguna, óbreytt frá 1. umr. þess. Eg get ekki séð neina ástæðu til þess að breyta þingtímanum og hefir þessi skoðun mín ekkert breytst við að lesa nefndarálitið, því að eg fæ ekki séð, að nefndin færi neinar gildar ástæður fyrir breytingu þeirri, er hún leggur til að gerð verði á þingtímanum. Eg hefi getið þess áður, að þegar á alt er litið, væri heppilegast, að þingið kæmi saman í miðjum nóvember. Skal eg ekki rökstyðja þessa skoðun mína, þar eð 2 háttv. þm. hafa hana einnig og hafa rökstutt hana; skal eg láta mér nægja sú röksemdarleiðsla, þar eð eg felst á hana að mestu leyti. Ef þingtímanum er breytt með tilliti til þess hvað þingmönnum er hentugast, álít eg heppilegast, að þingið komi saman í miðjum nóv. En hins vegar tel eg þessa breytingu ekki svo nauðsynlega að ástæða sé að gera hana, og er eg frumv. mótfallinn. En ef þingtíminn verður færður til sumars, vil eg leyfa mér að mæla með því, að breytingatillaga mín verði tekin til greina.

Nefndin getur þess, að hentugt sé að þingið komi saman 17. júní. En þá séu oft ýmsir farartálmar bæði á sjó og landi. Þetta eru þó ekki svo miklir annmarkar, að þeir séu því til fyrirstöðu, að þingið geti komið saman á þeim tíma, enda þá oftast hægt að fara allra sinna ferða á landi. Eg hygg, að ein ástæðan fyrir flutningi þingtímans sé sú að nota eigi þinghúsið til háskólahalds. Nú er það venja hér við hina æðri skóla, að kenslutíminn endar fyrst síðast í júní, en háskólinn gæti þá tekið til starfa 15. sept. í stað 1. okt. Það væri enginn óhagur né óþægindi fyrir nemendur eða kennara. Þetta eru aðalmótbárurnar á móti því að láta þingið koma saman 17. júní. Hins vegar er 1. júlí alls ekki heppilegur tími, því að hann er mjög óhentugur fyrir bændur. Nú stendur þingið venjulega yfir í 10 vikur og gætu þeir ekki verið komnir heim til sín fyr en seint í sept., en þá verða þeir helzt að vera heima hjá sér vegna ýmsra áríðandi starfa. Þingið má því til að byrja svo snemma, að bændur geti verið komnir heim í miðjum sept.

Þá gæti farið svo, að 17. júní yrði almennur hátíðisdagur um land alt, eins og oft hefir verið hreyft áður, og að því leyti gæti þetta haft almenna þjóðlega þýðing. En sé ekki meiningin að setja háskóla á stofn strax hér í alþingishúsinu, þá álít eg, að betra sé, þegar á alt er litið, að halda þingið að vetrinum og ef það ætti að færa það nokkuð, þá að flytja það til 15. nóv. En ef háskóli yrði settur á stofn, þá játa eg, að það er mikil ástæða og þá eigi að flytja þingtímann, en láta það þó ekki koma seinna saman en 17. júní.