16.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1454 í B-deild Alþingistíðinda. (1837)
84. mál, færsla þingtímans
Framsögumaður (Jón Ólafsson):
Herra forseti! Eg verð að biðja hina háttv. þingdeild velvirðingar á, þó eg verði dálítið daufur í dálkinn fyrst í stað, eftir að hafa setið eins og vængbrotin æður undir þessum fellibyl, sem skall yfir mig frá háttv. 2. þm. Árn. (S. S.).
Eg skal þá snúa mér að aðalefninu í ræðu hins hv. þm. Árn. (S. S.), sem var, að ef þing yrði haldið að sumrinu, þá mundi alt of mikill lærdómur og þekking verða hér á þinginu, og að öðru leyti var ræða hans refsiræða á lærdóm og þekkingu og var honum meinilla við, hvað margir lærðu mennirnir væru. Eg býst þó ekki við, að hann vilji halda fáfræðinni í hásæti.
Þegar eg lít yfir deildina, þá sé eg heila tvo embættismenn fyrir utan fjóra presta. Þessir tveir embættismenn eru 2. þm. N.-Múl. (Jóh. Jóh.) og þm. Vestm. (J. M.). Þetta er nú embættisvaldið hér í deildinni og ofbýður mér það ekki svo fjarskalega. Prestarnir eru ekki yfirboðarar og geta ekki verið það samkvæmt stöðu sinni. Eg held hinn hv. þm. þurfi ekki að bera neinn kvíðboga sakir þess að þingmenn verði of lærðir. En hverja kallar hann lærða? Eru það þeir, sem lært hafa meira, heldur en það, sem stendur í stafrofskverinu og kunna meira í reikningi en fjórar höfuðgreinarnar? Ef til vill kallar hinn háttv. þm. þá lærða, sem tekið hafa próf í einhverri grein? Ef svo er þá eru þeir nokkuð margir hér í deildinni. Og þegar eg lít út yfir salinn, þá verður fyrst fyrir mér h. 2. þm. Árn. (S. S.). Eg skal játa, að eg álít það ekki einkis vert, að búfræðingar hafi sérmentun. Eg vildi þvert á móti óska, að sem mest og fjölbreyttust þekking ætti ávalt sæti á alþingi. Fáfræðin, sem sannarlega getur líka átt sér stað meðal svo nefndra »lærðra« manna, svo búfræðinga sem annara, er hvorki sómi né gagn alþingis. Eg get því ekki lagt svo mikið upp úr þessari árás hans á lærdóminn.
Ef við lítum á nefndina, sem fjallaði um þetta mál, þá sátu í henni 3 menn: einn bóndi, einn prestur og einn embættislaus og próflaus maður, sem heima á í Reykjavík. Þessir menn vilja, að þing komi saman á sama tíma og áður. Það er ekki eftir stéttum, sem menn greinir á. Við 1. umr. þessa máls hér í deildinni, greindi bændur mjög á um það, hvenær heppilegast væri, að þing kæmi saman. Sýnir það, að hér greinir menn ekki á eftir stéttum, heldur eftir persónulegri reynslu. Hér þýðir því ekki að fjölyrða um röksemdir. Í þessu máli fara menn eftir því, sem þeim hefir reynst hollast og happadrjúgast. Það eru að eins tvær stéttir manna, sem eiga óhægt með að sitja á þingi að sumrinu. Önnur þeirra, sjómannastéttin, á jafn erfitt með að sitja á þingi nú og þó þing væri haldið að sumrinu. Það skyldi þá vera að hún gæti setið á þingi, ef það væri haldið að haustinu. Hin stéttin, sem á óhægt með að sitja á þingi að sumrinu, er ráðunautastéttin. Ráðunautastéttin þarf að vera á ferðalagi á sumrum og á því óhægt með að sitja á þingi, ef það væri haldið að sumrinu til. En ef einn maður úr þessari fámennu stétt, nyti þess trausts, að að vera kosinn á þing — það hefir skeð — þá ætti hann að geta fengið mann fyrir sig til þess að ferðast um. Eitt, sem mælir með því að halda þing að sumrinu, er sparnaðurinn. Það yrði mun ódýrara að halda það þá, en að vetrinum. Það yrði ekki smáræðis ljós- og hitasparnaður. Annars er mér þetta ekki kappsmál. Þó álít eg ógerning að ákveða samkomudaginn 15. maí. En get felt mig bæði við 15. nóvember og 1. júlí.
Þá vill vinur minn háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) láta þing koma saman 17. júní. Við ræddum það í nefndinni, en þótti það lítt gerlegt. Mig minnir, að h. þm. S. Þing. (P.J.) hafi sagt mér að það hafi komið fyrir, að hesta hafi orðið að fella síðast í júní, hvað þá heldur fyrri hluta júnímánaðar, því þá er gróður minni. Hafís getur líka tálmað ferðum fyrst í júnímánuði.
Þó meir en 7. hver landsbúa eigi heima í Reykjavík, þá höfum við ekkert tillit tekið til þeirra, sem þar búa, en aðeins haft þá fyrir augum, sem þurfa að takast langa ferð á hendur til þess að komast á þing.
Eg get fallist á það, sem flutningsm. breyt.till. á þgskj. 189 tók fram, að skólar gætu byrjað 15. sept. og hætt 15. júní. Það væri ekert því til fyrirstöðu, að svo yrði, það væri á valdi umboðsvaldsins að haga svo til.
Eg álít það hafi ekki mikla þýðingu, að ræða um kosti og galla samkomudags þingsins. Þar fer hver eftir sinni eigin skoðun og reynslu.
Þá hefir það verið haft á móti því, að þing kæmi saman 15. nóvbr., að jólin muni fresta þinghaldinu um eina viku. Það gerir páskavikan núna. Það er engin brýn nauðsyn á að vera heima um jólin; það er að eins óskin um að vera á heimilinu meðal sinna, og svo auðvitað hin þjóðlega löngun í hangiketið og magálana, sem gerir það að verkum, að menn vilja endilega vera heima um jólin. En hangiketið gætu þeir nú alveg eins jetið hér.
Eg get ekki verið á sama máli og háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) um, að ef þing kæmi ekki saman fyr en 1. júlí, að þá mundi það standa fram á haust. Við skulum athuga, hvernig tíma þingsins er varið nú. Flest þingmannafrumv. og þingsályktunartillögurnar, sem ekki eru annað en tilraun til að láta menn hugsa fyrir sig, munu nálega hverfa úr sögunni, þegar ráðherrarnir eru orðnir þrír; þá verða málin miklu betur undirbúin og við það styttist þingtíminn. Frumkvæði þingmanna til mála er óheppilegt, nema alveg sérstaklega standi á. Þetta held eg sé nú nægilegt svar til athugasemda háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.).
Það hefir verið sagt, að 1000 ára reynsla væri ekki þung á metunum, því að nú séu aðrar samgöngur; en það verður að miða við þau ár, þegar ís kreppir að.
Eg býst ekki við að tala aftur. Þingmenn hafa svo gegnhugsað þetta mál, að það mun ekki vera hægt að hafa nein áhrif á skoðun þeirra.