10.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1472 í B-deild Alþingistíðinda. (1859)
22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands
Úr þessu verður hægt að þreyja þorrann og góuna. Stjórnarskránni verður nú breytt á þessu þingi, svo þetta verða ekki annað en bráðabirgðalög, sem einn eða tveir ráðherrar geta fengið eftirlaun eftir. Nefndin hefir sömuleiðis bætt úr þeim misskilningi, sem ýmsir hér í deildinni gerðu sig seka í, en aldrei var meining frumv., að ef embættismaður yrði ráðherra og hann sem embættismaður hefði rétt til hærri eftirlauna, en ráðherraeftirlaunanna, að hann þá haldi þessum hærri eftirlaunum. Nefndin hefir bætt úr þessu með því, að koma með breytingartillögu aftan við frumv., sem eg nú vil leyfa mér að lesa upp:
»Nú á ráðherra rétt til hærri eftirlauna, en hér er mælt, fyrir þjónustu í öðru embætti, er hann hefir áður gegnt, og skal hann þá njóta þeirra eftirlauna einna«.
Eg vissi ekki, að þetta ætti að standa fyrir neðan eða aftan, svo eg skrifaði það inn á milli. Eg er ekki formfastari en svo, að eg hélt það gerði ekkert til, hvar þetta stæði, og bið eg velvirðingar á því. Nefndin sá það í hendi sér, að embættismenn, sem verða ráðherrar, komast fyr á eftirlaun en þeir ella myndu gera. En eins og eg tók fram, þá eru þetta að eins bráðabirgðalög, sem í hæsta lagi einn eða tveir ráðherrar geta fengið eftirlaun eftir. Nefndin hefir kosið að fara þennan milliveg og vænti eg þess, að deildin samþ. breyt.till. á þgskj. 69 og breytingar nefndarinnar á þgskj. 116 og svo að lokum frumv. í heild sinni.