30.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1491 í B-deild Alþingistíðinda. (1885)

120. mál, farmgjald

Flutningsm. (Björn Kristjánsson):

Háttv. forseti hefir sýnt þá tilhliðrunarsemi, að taka þetta mál á dagskrá með því skilyrði, að engar umræður fari fram um það við 1. umr. Við flutningsmennirnir höfum gengið að þessu og óskum að því verði vísað til skattalaganefndar og að því búnu til 2. umr.