07.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1560 í B-deild Alþingistíðinda. (1927)
21. mál, búpeningsskoðun og heyásetning
Þorleifur Jónsson:
Eg er alveg samdóma þeim háttv. þm., sem talað hafa á móti þessu máli. Eg get ekki séð, að frumvarpið sé til neinna verulegra bóta. Aðalbreytingin frá því, sem nú er, er sú, að nú á að lögbjóða haustskoðun, ásamt vorskoðun þeirri, sem nú er í lögum. 2—4 menn eiga á haustin að fara um sveitirnar og skoða búpening manna og heyforða. En það er meiningarlaust að halda, að þessir skoðunarmenn, sem eru ókunnir öllum staðháttum á hverri jörð fyrir sig, geti úrskurðað að svona og svona skuli nú bóndinn setja á.
Bóndinn sjálfur hlýtur bezt að þekkja kosti og lesti á sinni jörð. Hann hlýtur að vita bezt, hve mikið má ætla á beitina, og honum hlýtur að vera kunnugra en öðrum afbæjamönnum um það, hvað hann er vanur að þurfa af heyjum, svona að meðaltali. En þetta geta skoðunarmennirnir lítið sagt um. Það skiftir líka miklu, hver á heldur, einum er sýnna um að fara með hey en öðrum, og kemst þessvegna af með töluvert minni heyforða. Yfir höfuð eru menn misjafnlega lagnir á að fóðra skepnur, fara með hey, og nota beit, svo að oft á það ekki saman nema nafnið, hvernig það er af hendi leyst. Heygæði eru ólík, þó heymagn sé líkt o. s. frv.
Eg get ekki annað séð, en að þessir ásetningsmenn eða haustskoðunarmenn hljóti að verða í vandræðum, og starf þeirra eða umferð ónýt. Skepnur eru þá úti um alla haga, og hlöður og heystæði full. Þeir geta því ekki einu sinni mælt heyin, eða gert nokkra sennilega áætlun yfir, hve mikill heyforðinn er, og því síður hafa þeir hugmynd um gæði þeirra, eða hollustu.
Þeir verða að taka það trúanlegt, sem bóndinn segir þeim um heymegnið. Og eg þykist þess fullviss, að slíkar haustskoðanir hafi ekkert að þýða, ef eitthvað verulega á bjátar.
Eg skal nefna eitt dæmi. Haustið 1909 voru heybirgðir manna í langmesta lagi. Skoðunarmenn myndu líka hafa talið alla ágætlega birga, sem von var, og ekki dottið í hug að segja mönnum að lóga af heyjum. En hvernig fór? Veturinn var harðari en dæmi eru til áður um langan tíma og vorið var mjög hart, svo að hey þrutu og alt var komið á heljarþrömina, þegar harðindin sljákkuðu í maímán. 1910.
Þessu myndu engir skoðunarmenn hafa gert ráð fyrir, og hvaða gagn er þá að skoðunarmönnum, þegar allir eru jafnir í því að sjá fyrir harða vetra og voðavor hér á landi? Og hvaða gagn myndu þeir gera, þegar óhöpp vilja til? Eg skal koma með dæmi úr mínu héraði. Hey brann hjá bónda einum í haust. Hvaða ráð myndu nú skoðunarmenn hafa gefið bónda þessum? Þeir myndu hafa sagt honum, að lóga miklu af kúnum, flestum lömbum og líklega einhverju töluverðu af fullorðnu fé. Helzt gæti hann kannske haldið hrossunum á brunaleifunum. — En þótt engir skoðunarmenn væru, var þessum bónda hjálpað samt og á annan hátt en skoðunarmenn myndu hafa getað. Sveitungar hans skutu saman handa honum, svo hann gat keypt sér fóðurbæti og þannig haldið kúm sínum og mestu af öðrum búpeningi. Þetta var gert án þess skoðunarmenn kæmu nokkursstaðar nærri. Eg sé ekki annað, en að þessar haustskoðanir verði gagnslaust kák og verði að eins til að auka kostnað á hreppunum, þar sem þeir þurfa að launa 2—4 skoðunarmönnum. Það er nóg að hafa lögin frá 9. febr. 1900, sem eg hefi nú aldrei getað álitið, að væru til mikils gagns, þau eru miklu fremur stórt »humbug«. Skoðunin er að eins til málamynda, hún er afllaus og hefir engin áhrif á búskapinn. Hefi því litla trú á, að hann batni mikið, þótt öðrum skoðunum sé bætt ofan á. Felli menn úr hor, þá mun það oftast af neyð og óvanalega hörðu árferði, en ekki illmensku, enda hefir ekki verið gengið ríkt eftir, að þessum horfellislögum væri framfylgt. Það er líka dálítið undarlegt að búa til sérstök hegningarlög á bændagarmana, sem eru að vinna brauð úr jörðunni og leggja oftast fram alla sína krafta og alt sitt vit til að bjargast, þó því miður gangi það misjafnlega. Miklu nær væri að afnema öll þessi horfellislög. Eg treysti meira á forðabúrslögin, bæði þau frá 1909 og þau sem nú eru í smíðum hér í þinginu, ásamt vaxandi búviti, hagsýni og mannúð við skepnur, og hagnaðarvoninni af vel með förnum bústofni.
Eg orðlengi þetta svo ekki frekar, en mun greiða atkvæði á móti frv.