07.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1563 í B-deild Alþingistíðinda. (1929)
21. mál, búpeningsskoðun og heyásetning
Einar Jónsson:
Eg hefi skrifað undir nefndarálit meiri hlutans með fyrirvara og finn skyldu mína að skýra háttv. deild frá ágreiningsatriðunum. Að eg gat hvorugum nefndarhlutanum fylgt kemur til af tveim atriðum að eins, og hélt meiri hluti nefndarinnar sér fast við annað atriðið, en minni hlutinn við hitt. Gat því eigi náðst samkomulag. Eg set mig á móti haustskoðun, af því eg álít að hún sé gagnslaus, og er það af sömu ástæðum og háttv. þm. A.-Sk. (Þ. J.) tók fram, svo eg þarf ekki að vera að taka það upp aftur. Sömuleiðis er eg á móti því, að menn séu sektaðir; tel óréttlátt og öfugt, að beita þá menn peningasektum, sem verða fyrir óhöppum og eignatjóni. Hordauði á sér naumast stað nema í langvarandi harðindatíð og þar af leiðandi fóðurskorti. Skoða eg sekt í slíkum tilfellum mjög harðýðgislega og illa viðeigandi.
Skoðunarmennirnir, sem fara skoðunarferðina seinni part vetrar, hafa heimild til þess að útvega fóður á eigandans kostnað, ef peningi hans er hætta búin vegna fóðurskorts. Og þegar skoðunarmennirnir hafa þetta vald, verður sektarákvæðið óþarft. Eg álít, að ein skoðunarferð seinni part vetrar sé alveg nóg.
Eg skal svo ekki fara fleiri orðum um málið að sinni.