07.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1564 í B-deild Alþingistíðinda. (1930)

21. mál, búpeningsskoðun og heyásetning

Bjarni Jónsson:

Það eru orðnar æði miklar umræður um þetta mál, og skal eg því reyna að vera stuttorður. Mín skoðun er, að þetta frv. geti orðið gott með nokkrum breytingum, sem væntanlega koma við 2. umræðu, og það er víst, að frv. er miklum mun betra en horfellislögin svonefndu, sem við eigum nú undir að búa. Einkum er það mikil bót, að hin ranglátu sektarákvæði eru úr lögum numin. Eg álít 2 skoðunarferðir alveg nauðsynlegar. Haustskoðunin á að vera til þess að gefa mönnum góð ráð og bendingar, hvað óhætt muni að setja á o. s. frv. Móti þessu hafa menn fært það, að skoðunin yrði algerlega gagnslaus, þar sem hver bóndi þekkti bezt kosti sinnar jarðar og geti sjálfur miklu betur dæmt um, hvað mikið sé setjandi á vetur en ókunnugir skoðanamenn. En eg hygg nú þá eina skoðanamenn verða valda, sem gagnkunnugir eru öllum jörðum í hreppnum og þess utan ábyggilegir og skynsamir menn. Og það hljóta að vera ótrúlega stórir hreppar, þar sem hver bóndi yfirleitt þekkir ekki allar jarðirnar. Eg get hér af reynslu talað, því að eg er sjálfur alinn upp í sveit, og það meira að segja stórri sveit, hefi bæði fengist við fjármensku og önnur störf, og það get eg fullyrt, að enn þann dag í dag þykist eg þekkja kosti hverrar jarðar þar, eins og bóndi sá, er á jörðinni býr. Svo er og þess að gæta, að jafnvel þó margir bændur séu góðir og ötulir, þá myndi áreiðanlega helmingur bænda í sveitinni hafa gott af því, að hinir vitrari menn kæmu og gæfu þeim holl ráð, og er þeim engin hneisa með því gerð. Menn vita það, að það er hin veika hlið bænda, að setja of djarft á vetur, og er því sízt vanþörf á slíkri haustskoðun, og sá helmingur bænda, sem eg gat um, má vera þakklátur góðum ráðgjöfum, sem leiðbeina þeim í tíma, svo að hægt sé að fækka skepnum meðan markaðurinn er opinn. Það mætti því helzt ekki vera seinna en í októbermánuði.

Eg er á sama máli og hv. 1. þm. Rang. (E. P.) um það, að seinni skoðunin er aðalskoðunin og meir um hana vert en hina fyrri. Séu skoðunarmenn eins og ráð er gert fyrir aðgætnir menn, geta þeir við seinni skoðunina séð, hvernig bændur hafa hlýtt ráðum þeirra, og ef misfellur eru á, reynt að bæta úr þeim. Skoðunin ætti helzt ekki að fara fram seinna en á góunni. Því á miðgóu fara menn að sjá, hvort fóður muni duga fram úr, og ef svo er ekki, fara menn að draga við skepnurnar, og getur svo farið, að menn felli úr hor. En einn af aðalkostum frv. er sá, að það gerir ráð fyrir því, að skoðunarmenn geti gert ráðstafanir á kostnað viðkomandi bónda til þess að bæta úr fóðurskorti og verður sú ákvörðun einkum happasæl, þegar búið er að setja á stofn heyforðabúr. Til þess tíma er hætt við, að hún komi ekki að eins miklum notum.

Ef menn á góunni óhlýðnast ráðum skoðunarmanna, þá fyrst er ástæða til að sekta menn fyrir þrákelknina, en hitt er ranglátt, að hegna mönnum, þó þeim vilji slys til, því að það er ekki af fúlmensku, að menn fella úr hor, heldur af vandræðum. Menn setja djarft á með þeirri von, að alt fari vel — en þegar illa fer, þá fer saman vilji mannsins og skepnunnar. Maðurinn vili halda sem lengst lífinu í henni og hún vill lifa sem lengst En eins og eg tók fram, er sjálfsagt að sekta menn, ef þeir fara ekki eftir þeim ráðstöfunum, sem skoðunarmenn gera á góunni, af því að þá hafa menn vissuna um, hvernig fara mun, en aftur á móti á haustin er ekki hægt að segja, hvernig féð hirðist eða úr rætist um veturinn.

Eg vona, að frv. verði látið ganga til 2. umr., og að þá komi fram góðar brtill., svo að það verði vel úr garði gert og komi í stað hinna núgildandi horfellislaga.