07.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1572 í B-deild Alþingistíðinda. (1934)
21. mál, búpeningsskoðun og heyásetning
Björn Sigfússon:
Mér kom það ekki á óvart, að mál þetta yrði að eins til þess að eyða tíma deildarinnar: Eins og háttv. meðnefndarmanni mínum, sem ágreiningsatriði gerði, virðist mér frv. þetta allsendis óþarft og get eg ekki betur séð, en að það sé fram komið af einhverri ástríðu, sem virðist hafa gripið suma þingmenn, að vera altaf að hripa upp breytingar á gildandi lögum.
Eg get ekki séð hina minstu ástæðu til þess að fara nú að lögskipa almenna haustskoðun á fénaði og fóðurbirgðum um land alt, enda er ómögulegt að gera það af nokkru viti, vegna mismunandi staðhátta o. fl., eins og búið er að taka svo ítarlega fram. Þessi fyrri skoðun á að vera bráðnauðsynleg til þess að gefa mönnum góð ráð. En það þarf ekki neina nýja lagaheimild til þess. Það er einmitt þetta, sem gert er nú í þeim tilfellum, þegar kunnugt er um að hætta er á, að einhver hafi of litlar fóðurbirgðir fyrir óhöpp eða annað. Dæmi háttv. þm. A.-Sk. (Þ. J.) þegar heyið brann, sannar þetta ljóslega.
Meðhaldsmenn frumv. þessa virðast alveg gleyma því, að í núgildandi lögum er full heimild fyrir skoðunarmenn til að líta eftir fóðurbirgðum á haustin, ef ástæða þykir til þess. Það þarf því enga nýja heimild fyrir því. Upp úr þessu mundi að eins hafast nýr kostnaður fyrir sveitarsjóðina.
Háttv. framsm. meiri hl. (J. J. N.-M.) hneykslaðist á hegningarákvæðum horfellislaganna, sagði að það væri skrítið að vera að hegna fyrir slíkt. En hinn háttv. framsögum. meiri hlutans verður þá að ganga lengra, ef hann vill vera laus við öll hegningarákvæði. Hann verður líka að breyta hegningarlögunum, svo að aldrei verði hægt að refsa neinum, hversu ómannúðlega, sem hann fer með skepnur sínar. En annars vildi eg biðja menn að hugsa um, hvort ei sé ástæða til að hegna, ef slíkt kemur fyrir, sem hv. 2. þm. Eyf. (St. St.) nefndi, að einhver yrði heylaus og hann samt sem áður væri svo harðsvíraður, að neita að þiggja hjálp góðra manna og dræpi svo úr hor. Er þá óeðlilegt að hegna? Eg held ekki — þvert á móti er hin fyllsta ástæða til þess. Þetta, sem eg nú hefi tekið fram, áleit eg eigi nógu skýrt tekið fram áður og tók því til máls, en annars hefir háttv. 2. þm. Eyf. (St. St.), sem ágreiningsatkvæði gerði með mér, fært svo góð rök fyrir okkar málstað, að eg álít óþarft fyrir mig að fara meira út í það.