07.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1574 í B-deild Alþingistíðinda. (1936)

21. mál, búpeningsskoðun og heyásetning

Björn Sigfússon:

Eg vil leyfa mér að svara með fáum orðum háttv. 2. þm. Árn. (S. S.), af því hann gaf í skyn, að mikill horfellir hefði síðastliðinn vetur átt sér stað í Húnavatnssýslu. Ekki veit eg, hvaðan honum kemur sú vizka; eg held að hann sé því lítt kunnugur, sem hann er þar að tala um. Þó honum gremjist, að eg skuli leyfa mér að hafa aðra skoðun á þessu máli en hann, ætti hann ekki að grípa til þess að reyna að ófrægja bændur alment þar nyrðra; það er ekki drengilegt. Eg skal viðurkenna, að nokkuð heyleysi átti sér stað í nyrzta hreppi sýslunnar, án þess um væri að kenna forsjáleysi eða harðýðgi. Ástæðan fyrir því var sú, að veturinn var óvanalega harður og vetrarveðurátta byrjaði löngu fyrir vetur með mikilli fannkyngi, sem hélst óslitið fram á vor. Þó þetta sé fremur harðindasveit, er það alveg óvanalegt, að ekki taki þar upp aftur snjó, sem rekur niður á haustin, fyr en á næsta vori. Þó að þar hefði verið framkvæmd haustskoðun, mundi engum skoðunarmönnum hafa dottið í hug að ráða til niðurskurðar. En þegar það kom í ljós, að fóðurskortur mundi verða, var gerð gangskör að því að bæta úr þessu; bæði hreppsnefnd og sýslunefnd gerðu ráðstafanir til að útvega fóðurbirgðir frá útlöndum, ekki af því, að ekki væri nóg fóður til í sýslunni, heldur af því, að aðflutningur á heyi hefði orðið dýrari framan úr sveitum en frá útlöndum. Þar hefði ekkert annað eða frekara verið gert í þessu tilfelli, þó að menn hefðu staðið þar með frumv. hv. 2. þm. Árn. (S. S.) í höndum, og það verið búið að ná lagagildi.

Eg finn enga ástæðu til að taka það aftur, þó eg segði, að bæði þessi háttv. þm. og fleiri virtust hafa nokkra ástríðu til þess að koma fram með ný lagafrv. og að hann væri sérstaklega með því marki brendur. Alt þingið veit að þetta er satt.