25.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1614 í B-deild Alþingistíðinda. (1986)
105. mál, íslenskur fáni
Jón Magnússon:
Eg er samdóma hinum háttv. framsm. (Sk. Th.) um, að vér þurfum ekki að vera að hugsa um, hvað Dönum líkar betur eða ver í þessu máli. Vér eigum að hugsa um það eitt, hvað framkvæmanlegt er. Það er ekki altaf hægt að koma réttu máli fram, en öll lagasetning verður að miðast við það, hvað hægt er að framkvæma. Og þessu máli verður eigi komið í framkvæmd að svo stöddu.
Hinn háttv. framsm. (Sk. Th.) sagði, að þjóðréttarfræðin væri ekki nema staðlausar kenningar; það er ekki rétt. Hér er að ræða um »praktiskan« evropeiskan þjóðarétt, sem er fylgt í framkvæmd af öllum siðuðum þjóðum. Vera má að hinn háttv. framsm. (Sk. Th.) álíti okkur Íslendinga svo mikla, að við þurfum ekki að binda okkur við gildandi þjóðarrétt. En flestir skynbærir menn munu vera á öðru máli um það. Það er hin mesta fjarstæða, að það geri ekkert til út á við, þótt sama ríkið hafi tvo fána; það er þvert á móti föst regla samkvæmt alþjóðaréttinum, að eitt ríki getur að eins haft einn þjóðarfána. Mig hefir annars ekki langað til að vekja deilu um þetta mál, eg hefði þvert á móti gjarnan viljað greiða atkvæði með því, ef eg á nokkurn hátt sæi mér það fært.