25.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1623 í B-deild Alþingistíðinda. (1998)

105. mál, íslenskur fáni

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Stutt athugasemd. Eg mintist ekkert á, hvort eg væri frjálslyndur eða ekki. Sagði að eins, að eg væri eins frjálslyndur og víðskygn og hinn háttv. framsm., og ef hann kallar það sjálfhælni, þá liggur í þeim orðum hans, að hann er sjálfhælinn í meira lagi.