24.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1628 í B-deild Alþingistíðinda. (2004)
122. mál, frestun aðflutningsbanns
Jón Magnússon:
Eg get lýst því þegar, að eg mun verða á móti þessu frv. um frestun á framkvæmd bannlaganna, eins og eg er á móti frv. hv. 1. þm. GK. (B. Kr.), sem hefir líkan tilgang. En mér finst það eðlilegt, þar sem mál þetta hefir gengið í gegn um háttv. Ed., að það verði sett hér í nefnd og hefi eg ekkert á móti, að það verði sama nefndin og hefir hér til meðferðar hitt frv., er eg nefndi. Tilgangur beggja þessara frv. er sá sami, nefnilega sá að styðja að því, að meira áfengi verði flutt inn en ella mundi. En það sem bannmenn hafa fyrir augum er einmitt hið gagnstæða, nefnilega að stuðla að því, að sem minst áfengi flytjist inn í landið, og oss hefir frá upphafi ekki dulist það, að ef ekki yrði áfengi flutt inn í landið, þá kæmi enginn áfengistollur í landssjóð, sú tekjugrein félli burtu og til þess hefir oss þótt vinnandi. En eg sé samt ekki, að deildin, sóma síns og þingsins vegna, geti felt jafn þýðingarmikið mál frá nefnd, einkum þar sem það hefir verið samþykt með nokkrum atkvæðamun í hv. Ed.
Eg skil það ekki hjá háttv. þm. Barð. (B. J.), að svo mjög ríði á að fella frv. strax. Það ætti ekki að vera meiri hætta á því fyrir því, að það yrði samþykt.
Eg mun því greiða atkvæði með því, að málið verði sett í nefnd, en lengur get eg ekki fylgt því.