24.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1658 í B-deild Alþingistíðinda. (2023)
147. mál, ölgerð og ölverslun
Bjarni Jónsson:
Eg er nefndinni þakklátur fyrir, hvað hún hefir tekið mikið tillit til orða minna við 1. umr. máls þessa og hvað hún hefir nálgast skoðanir mínar á máli þessu, enda þótt hún hafi ekki viljað taka þær allar til greina. Að minsta kosti hefi eg ástæðu til að vera nefndinni þakklátari fyrir hvaða tillit hún hefir tekið til orða minna í þessu máli en nefndinni í skógræktarmálinu. Sérstaklega er eg nefndinni þakklátur fyrir að fella staflið a. við 3. gr. frv. burtu. En hún hefir ekki gengið nógu langt í því að lagfæra frv., því að hún hefir lagt til, að landssjóður fái helming af gróða félagsins eftir að greiddir eru 5% vextir af hlutafénu, ¾ hluta af gróðanum eftir að greiddir eru 6% vextir og 9/10 þá er hluthafar hafa fengið 10% ágóða. Eg álít, að betra hefði verið að láta landssjóð hafa minna en helming af gróðanum til þess að byrja með, og ennfremur er það of lítið að láta hluthafa ekki hafa meira að lokum en ? af honum. Menn leggja ekki út í vafasöm fyrirtæki, þar sem svo lítil von er um ágóða sem 6%. Það er hægt að þéna meira á því að lána út peninga. Þetta mundi því skaða landið, þar eð menn þyrðu ekki að ráðast í slíkt fyrirtæki. Það mundu verða útlend ölgerðarhús, sem fúskuðu með þetta. Mundum vér því ekki fá betri vöru fyrir sitt leyti en hið svo nefnda ormkorn, er óvönduð félög flytja hér til landsins. Eg hygg því, að mínar till. mundu ráða bót á þessu. Eg álít það mjög mikið vafamál, hvort rétt sé að setja einokun á atvinnuvegi. Þó er sölueinokunin viðsjárverðari, ef í einum landshluta er. Það er ekki rétt, að hafa hér sérstaka verzlunaraðferð. Það er hægt að fá öl hjá kaupmönnum annarstaðar, t. d. í Hafnarfirði, ef menn vilja ekki fá öl frá ölgerðarhúsinu hér. Það sæmir ekki þinginu að veita einu bæjarfélagi einkaleyfi. Slíkt er algerlega út í loftið, og mun eg ekki ljá því atkvæði mitt. Það er einnig rangt, að einskorða frv. við öl og maltdrykki. Ef landssjóður hefir slíkt með höndum, á hann að hafa sem mest með höndum. Það er ekki hægt að fá næga reynslu í þessu, ef leyfið er að eins veitt einum kaupstað eða bæjarfélagi, Það verður að veita það öllum bæjar- og sveitarfélögum, ef þau æskja þess.
Ef þessi regla er tekin upp, þá leiðir það til þess, að öðrum hvorum verður gerður óréttur. En viðbót nefndarinnar á þgskj. 705 er góð. Það er rétt að binda þetta við styrkleikann.
Það sneri sér til mín maður hér á dögunum, Gísli Guðmundsson forstöðumaður gosdrykkjaverksmiðjunnar »Sanitas« á Seltjarnarnesi, og ein af mínum brtill. stendur einmitt í sambandi við þessa verksmiðju. Ef mönnum er gert svo örðugt fyrir, að alls enginn hagnaður geti orðið af þessari atvinnu utan kaupstaðarlóðarinnar, þá er ekkert líklegra, en að t. d. þetta hlutafélag, sem á »Sanitas«, yrði þvingað til þess að flytja hús sín inn á kaupstaðarlóðina. Tillaga mín er því til þess gerð, að mönnum verði unt að reka þessa atvinnu utan kaupstaðarlóðarinnar, og sé eg því ekki annað en að það sé til bóta, að samþykkja hana, eins og reyndar allar hinar aðrar brtill. mínar.