24.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1690 í B-deild Alþingistíðinda. (2047)
26. mál, skógrækt
Þorleifur Jónsson:
Þótt eg sé mjög hlyntur skógræktinni, þá lýsi eg því eigi að síður yfir, að eg aðhyllist tillögur nefndarinnar. Eg skil ekki annað, en að nægilegt sé fyrst um sinn að hafa 2 skógarverði, annan á Hallormsstað, en hinn á Vöglum.
Því hefir verið haldið fram, að ef þeir væru að eins tveir, hefðu þeir ekki tíma til þess að ferðast um land alt. En skógarvörðurinn á Hallormsstað, sem er mjög áhugamikill í sínu starfi, ferðaðist síðastliðið ár frá Langanesi að Skeiðará og ef sá, sem er á Norðurlandi, hefir farið yfir jafn mikið svæði, skil eg ekki annað en að hann hafi getað komist yfir þau svæði norðanlands, þar sem er skógur eða kjarr. Og þó að þessir 2 verðir gætu ekki ferðast um alt landið nema annaðhvort ár, þá mundi það verða nægilegt til þess, að vekja áhuga á máli þessu hjá öðrum, en það á að vera aðalhlutverk þeirra. Því hefir að vísu verið haldið fram, að skógarverðirnir ættu að ferðast um aðallega til þess að kenna öðrum. En eg hygg, að slík kensla á hröðum ferðalögum sé ekki mikils virði, því að þeir gætu ekki meðal annars sýnt nægilega hvernig á að gróðursetja o. fl. Aftur á móti hygg eg, að miklu betra sé að menn væru sendir úr sýslunum, þar sem skógarleifar eru til skógræktarstöðvanna, til þess að nema þar skóggræðslu. Þetta gæti fyllilega vegið upp á móti því, að hafa fleiri skógarverði. Skal eg í sambandi við þetta geta þess, að síðast liðið ár fengu 2 menn úr Austur-Skaftafellssýslu lítilfjörlegan styrk úr sýslusjóði, (50 kr. hvor) til þess að ferðast til Hallormsstaðar og kynna sér þar hið helzta, er lýtur að verndun skógarleifa o. fl.
Eg veit ekki betur, en að þessir ungu menn, er sendir voru, hafi fengið mikinn áhuga á verndun og ræktun skóga og hygg eg þess vegna, að ferð þeirra hafi komið að tilætluðum notum og að þeir veki áhuga á málinu heima fyrir. Var annar þeirra úr Öræfunum, en þar er Bæjarstaðaskógur, sem er einhver hinn gróðurríkasti skógur hér á landi. Eg vildi einmitt skjóta því fram til athugunar, að það mundi verða þýðingarmeira, að menn úr sýslunum væru sendir til skógræktarstöðvanna, til þess að nema þar skógrækt, heldur en að skógarvörðunum væri fjölgað. Þessir menn gætu svo leiðbeint bæði Ungmennafélögunum og öðrum. Ef þetta væri framkvæmt, hygg eg, að skógræktarmál vort sé ekki í neinni hættu, þótt ekki sé bætt við 2 skógarvörðum.