03.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1709 í B-deild Alþingistíðinda. (2059)
133. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands
Þorleifur Jónsson:
Þar sem eg skrifaði undir nefndarálitið með fyrirvara, álít eg rétt að gera nokkra grein fyrir skoðun minni á þessu máli. Eg þarf ekki að vera langorður, því að h. þm. Snæf. (S. G.) hefir tekið fram mikið af því sem eg vildi sagt hafa. Eg skal játa það, að nauðsynlegt var, að slíkt frv. kæmi fram, og það er skaði, að það er ekki fram komið fyrir löngu. Við vorum samdóma um það í nefndinni, að nauðsynlegt væri að undirbúa lagafrv. um símakerfi landsins, ekki síður en um vegalagningar og að þessu leyti vildum við vinna saman við aðra nefndarmenn.
En þó að þetta séu nauðsynleg lög, þá álít eg að talsvert sé athugavert við ýmsar greinar frumvarpsins. Eg hefi altaf verið þeirrar skoðunar, að landið sjálft ætti að kosta allar símalínur með fram þjóðvegum og að því leyti get eg skírskotað til orða h. þm. Snæf.
(S. G.). En eftir undanfarinni venju fær þetta víst ekki mikinn byr, þó að eg verði að álíta, að mikið misrétti hafi skapast við þá reglu.
Héruðin milli Seyðisfjarðar, Reykjavíkur og Ísafjarðar hafa fengið síma alveg endurgjaldslaust, en önnur héruð verða að leggja fram meiri og minni skerf til þess að komast í samband. Þetta fer alveg í gagnstæða átt við vegalögin, sem háttv. framsögum. (P.J.) hefir verið að vitna í. En annars var þetta ekki aðalatriðið hjá mér, heldur hitt, að frumvarpið kemur í bága við þá stefnu, sem eg og fleiri höfum í loftskeytamálinu. Eg er þeirrar skoðunar, að heppilegast muni vera, að koma loftskeytasambandi á milli Vestmanneyja og meginlands, bæði vegna þess, að það verður stórum mun ódýrara en sími, bilunarhætta engin og einnig af því að hér í Reykjavík er ætlast til, að loftskeytastöð verði reist, hvort sem er, eins og líka frumvarpið fer fram á. Frumvarpið kemur því í bága við þessa stefnu mína og fleiri hv. þm. og get eg því ekki fylgt ákvæðinu um hliðarsíma til Vestmanneyja, einkum þar sem ekki er loku fyrir skotið, að loftskeytamálið nái fram að ganga á þessu þingi. Verði loftskeytamálið felt, þá er auðvitað ekki annað fyrir höndum en að koma sem fyrst á símakerfi um alt land, því að dráttur á því máli er mjög skaðlegur fyrir hin símalausu héruð. En eg býst ekki við, að málinu geti orðið flýtt svo, að það nái framgangi á þessu þingi. Eg mun samt greiða atkvæði með því, að það fái að ganga til 3. umr., til þess að deildinni gefist kostur á að athuga það svo og undirbúa, að stjórnin geti lagt það fyrir næsta þing. Að þessu leyti vil eg að málið verði stutt, án þess að eg bindi atkvæði mitt í einstaka greinum.