03.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1713 í B-deild Alþingistíðinda. (2062)

133. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Benedikt Sveinsson:

Eg á hér breyt.till. á þgskj. 844 og skal eg skýra frá þeim með nokkrum orðum.

Eftir því, sem símaleið er mörkuð á korti símastjórans, er ætlast til þess að símalína liggi frá Ferjubakka í Öxarfirði sjónhending til Húsavíkur, þ. e. a. s. um Reykjaheiði eftir Bláskógavegi. Liggur síminn þá um óbygðir einar allan þennan veg, frá Jökulsá til Húsavíkur. En undir jaðri Reykjaheiðar er Kelduhverfi, ein hin blómlegasta og fjölmennasta bygð í allri sýslunni. Samkvæmt áætlun símastjórans er ætlast til að sneitt sé fram hjá þessari sveit og sýnist það, eftir »korti« hans liggja heldur beinna við, að því er stefnuna snertir, en eg verð að biðja háttv. deild að taka vel eftir því, að leiðin er ekki rétt mörkuð á kortinu. Sakir staðhátta verður hún að liggja í allmikinn bug suður á við, eins og Bláskógavegur, til þess að sneiða hjá Skinnstakkahrauni, sem fult er af gjám og nálega ófært yfirferðar, og einnig verður hún að sneiða suður fyrir Grísatungufjöllin. Það nær engri átt, að síminn verði lagður eftir sjónhending beint yfir þessar torfærur, heldur hlýtur þetta að hafa verið markað á »kortið« athugalaust.— Þessi bugur frá beinni línu verður mjög áþekkur þeim bug, sem á, símaleiðinni verður, ef hún liggur eftir endilöngu Kelduhverfi með bygð og síðan yfir Tunguheiði til Húsavíkur. Á þennan hátt lægi síminn allur í bygðum, nema yfir Tunguheiði, sem er stuttur fjallvegur.

Þess ber og að gæta, að ódýrara er að flytja staurana á þessa leið en hina, því að hún er skemmra frá sjó. Ennfremur er hægara að gera við símann í bygðum heldur en á heiðum uppi. Það er varla hættulaust mönnum á vetrardegi að klungrast yfir hraun þau og gjár, sem síminn mundi liggja um, ef syðri leiðin væri farin fjarri mannabygðum. Ef sú leið er valin, verður þessi sveit, Kelduhverfið, símalaust. Skilst mér þó, að nær liggi, að bygðamenn fái síma, heldur en sauðfénaður og hreindýr á heiðum uppi, að minsta kosti þegar hvorttveggja er jafndýrt.

Háttv. framsögum. (P. J.) benti á það, að leggja mætti síma um Kelduhverfi síðar. Það tel eg tvíverknað og alveg óþarfan aukakostnað, sem þegar mætti spara. Væri kringilegt, að þurfa aftur að leggja síma samsíða hinum langan veg. —

Menn mega vel hafa það í minnum, er síminn var lagður 1905, að þá var sneitt hjá bygðum norður þar, en síminn lagður um fjöll og firnindi á öræfum uppi. Mun það hafa stafað bæði af undirbúningsleysi og svo hafa menn horft í þann lítilfjörlega kostnaðarauka, þær 20—30 þús. kr., sem munaði á verði, ef bygðaleiðin hefði verið valin. Nú kannast allir við, að þetta hafi verið mesta yfirsjón og glapræði.

Syðri leiðin, um Reykjaheiði, hefir ekkert sér til ágætis um fram þá nyrðri, nema síður sé. Styttri er hún ekki, eða ekki svo að neinu nemi. Viðgerðir verða miklu óhægri, ef vír slitnar. Reykjaheiði er fullkomin dagleið á vetrardag bygða á milli. Aftur er Tunguheiði eigi lengri en svo, að tveggja klukkustunda tíma tekur hún fótganganda mann á vetrardegi milli bæja, og loks er á það að líta, að fjölbygðasta og þéttbýlasta sveitin færi á mis við síma, ef valin væri hin syðri leið.

Það er því eigi að undra, þótt Keldhverfingar og Öxfirðingar fylgi því fram, að fá símann með bygð á þessu svæði, og öllu héraðinu er það áhugamál, eins og þingmálafundagerðirnar bera vitni um.

Mér hefir verið skrifað það norðan úr Kelduhverfi, að Forberg hafi ekki haft tal af sveitabúum í yfirför sinni, síðastliðið sumar, enda mun hann hafa farið yfir í flaustri, og lítt notið við eiginna athugana, heldur stuðst við mælingar Hansons nokkurs verkfræðings, þess er þar fór um fyrir nokkrum árum, eins og háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) gat um.

Eftir því sem allir málavextir eru, þá efa eg ekki, að deildin taki þessari tillögu vel, en þó vil eg verða við tilmælum háttv. framsm. um að taka tillöguna út af dagskrá í þetta sinn, og geyma til 3. umr. Treysti eg því, að svo muni fara um till., að henni vaxi fylgi því meir, sem hún er betur íhuguð.

Síðari brtill. mín er við 6. gr. frumv. um að væntanlegt loftskeytasamband sé ætlað milli Íslands og Vesturheims, en ekki skorðað við vesturströnd Grænlands. Gengur mér það til, að ef þessa væri kostur, mundi að því verða meiri tekjur að hafa sambandið beint við brezk lönd í Vesturheimi, heldur en að þurfa að hafa þennan viðkomustað á leiðinni. Svo er og því meiri trygging fyrir því, að halda mætti öruggu sambandi við England eða önnur lönd í Norðurálfu, þótt sæsíminn slitnaði, eftir því sem stöðin hér væri öflugri. Eg hefi engin skjöl né skilríki fyrir þessu máli, en eg hefi talað við mann, sem vit hefir á því, og hyggur hann, að beint samband við Vesturheim mundi verða dýrara, en þó ekki meira en svo, að nema mundi 20—30 þús. kr., og er það ekki gífurlegt, þegar miklir hagsmunir og þægindi eru í aðra hönd.