03.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1715 í B-deild Alþingistíðinda. (2063)

133. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Björn Sigfússon:

Þótt eg hafi nú skrifað undir nefndarálit þetta með fyrirvara, þarf eg ekki að halda langa ræðu, heldur get eg látið mér nægja að skírskota til orða samnefndarmanna minna, háttv. þm. Snæf. (S. G.) og sérstaklega háttv. þm. A. Sk. (Þ. J.) sem hafa skýrt frá í hverju ágreiningur okkar er fólginn, og vil eg ekki vera að endurtaka það. Eg er samþykkur aðalstefnu frumv. og var það á síðasta þingi, nfl. þeirri stefnu, að setja lög um alla aðalsíma, sem mynda kerfi um land alt, líkt eins og gert er í vegalögunum.